Filt og vefur
Hvernig á að setja upp filt og vefdúk?
Undirbúningur
Áður en dúkurinn er settur upp skal gera við allar skemmdir og ójöfnur með spartli. Þannig má koma í veg fyrir að veggflöturinn verði ósléttur. Fjarlægja skal gamalt veggfóður ef við á. Að því loknu skal grunna veggflötinn með viðeigandi grunni, t.d. Forankringsgrund rykbindigrunni. Ef undirlagið er mjög ídrægt er mikilvægt að metta flötinn með grunninum áður en lengra er haldið. Mælt er með að bera grunninn á með fínni málningarrúllu. Berið grunninn á í því magni sem veggurinn tekur við. Þegar grunnurinn fer að leka niður vegginn þá er flöturinn orðinn mettaður og telst þá tilbúinn til frekari meðhöndlunar.
Uppsetning
Gætið þess að nota rétta tegund veflíms fyrir þá tegund vefs sem verið er að nota. Þyngd dúksins er mismunandi eftir því hvaða tegund er valin og því er mikilvægt að vera með rétt lím. Þegar flöturinn hefur verið grunnaður og límið, dúkurinn og verkfærin er klár við hendina er hægt að hefjast handa við uppsetningu. Við mælum með að þú setjir upp eina rönd af dúk í einu, þ.e.a.s. rúllar lími á eina rönd í einu. Þannig má draga úr líkum á að límið þorni áður en dúkurinn er settur upp og minnka líkur á að hann leggist skakkt. Gætið þess að nota nóg magn af lími til að draga úr líkum á bungum. Ef þú ert að vinna með glervef þá mega rendurnar ekki skarast, heldur þarf að leggja þær með nákvæmum vinnubrögðum upp að hvor annarri. Aftur á móti er mælt með því að leggja glasfilt og trefjafilt ca. 4-5 cm yfir síðustu rönd. Mældu lengd veggsins áður en þú byrjar og reiknaðu út hvernig best er að leggja dúkinn. Mikilvægt er að hafa við hendina góðan dúkahníf með beittu blaði til að skera dúkinn til. Þú getur annaðhvort verið með nýtt blað eða brotið fremsta brotpartinn af blaðinu. Þegar búið er að bera límið á eina rönd skal leggja dúkinn á vegginn ofan frá og niður. Rennið yfir dúkinn jafnóðum með gúmmíspaða eða veggfóðursbursta til að tryggja að hann leggist vel í límið. Dragið spaðann / burstann frá miðju dúksins og út til beggja hliða. Að því loknu má hefjast handa við næstu rönd.
Áður en málað er
Áður en dúkurinn er málaður skal gæta þess að yfirborð hans sé mettað. Best er að metta glervef með líminu sjálfu en glasfilt og trefjafilt má metta með grunnmálningu. Best er að nota grófa málningarrúllu til að bera grunnmálninguna á. Með því að metta dúkinn áður en málað er má draga úr því magni sem þarf að nota af málningunni og minnka líkur á því að þurfa að mála fleiri en tvær umferðir. Þegar búið er að metta dúkinn með grunni eða lími er óhætt að yfirmála með málningu í þínum uppáhldslit.
Allt sem þú þarft í verkið
- Fylliefni eða viðgerðarspartl - til að jafna undirlagið
- Spartl - Til að jafna áferð eftir fylliefnið
- Forankringsgrund bindigrunnur
- Snögghærð málningarrúlla
- Veflím - t.d. Flügger Adhesive 378 veggfóðurslím
- Gróf málningarrúlla
- Gúmmíspaði eða veggfóðursbursti
- Dúkahnífur
- Tommustokk eða málband
Vönduð vinnubrögð.