Fara að aðalefni
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Flügger logo in black.
Grunnhreinsir

Grunnhreinsir

Góð undirbúningsvinna er lykilatriði í öllum verkefnum. Hreingerning með alhliða hreinsiefni frá Flügger er mjög mikilvægur partur í því að tryggja viðloðun og undirbúa flötinn sem best undir næstu skref. Hreinn flötur mun jafnframt auka líkur á fallegri og jafnri áferð að lokinni málningu. Alhliða hreinsiefnin hafa góða virkni, auðvelda þrifin og flýta fyrir í undirbúningnum, sem skilar sér í góðri lokaútkomu.
5 vörur
svanen
Sparaðu 25%
Frá 1.717 kr./stk.
(Frá 2.007 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 2.290 kr./stk.
Gæði
  • Fjölhæft fyrir margar gerðir yfirborðs
  • Öflugt gegn fitu, óhreinindum og nikótíni
  • Kröftug uppskrift sem skal þynna 1:30
svanen
Sparaðu 25%
Frá 1.717 kr./stk.
(Frá 3.434 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 2.290 kr./stk.
Gæði
  • Fjarlægir fitu, óhreinindi og nikótín
  • Tilbúið til notkunar
  • Svansvottað og lífniðurbrjótanlegt
Sparaðu 25%
Frá 2.542 kr./stk.
(Frá 2.542 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 3.390 kr./stk.
Gæði
  • Fyrir framandi viðartegundir
  • Fjarlægir óhreinindi og litabreytingar
  • Leggur áherslu á náttúrulegt útlit trés
Ný gæði
Sparaðu 25%
Frá 2.017 kr./stk.
(Frá 1.108 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 2.690 kr./stk.
Gæði
  • Nú enn öflugra gegn mislitun, óhreinindum og leifum af gamalli viðarolíu
  • Tilbúið til notkunar – þarf ekki að þynna
  • Hentar fyrir allar tegundir viðar
Sparaðu 25%
Frá 2.017 kr./stk.
(Frá 2.017 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 2.690 kr./stk.
Gæði
  • Fjarlægir sót, nikótín og tjöru
  • Fjarlægir einnig fitu og olíu
  • Miðlungs þétt hreinsiefni – þynnt 1:10 með vatni
Sýni 5 vörur af 5

Hvað er alhliða hreinsiefni?

Alhliða hreinsiefnin eru lína sem samanstendur af sérhæfðum hreinsiefnum sem eiga það sameiginlegt að vera hönnuð til að hreinsa og fituleysa veggi og aðra fleti áður en þeir eru málaðir. Hreinsiefnin hafa m.a. mikla virkni gegn fitu, olíum, sápuleyfum, sóti o.s.frv. Efnin skila hreinum fleti sem er tilbúinn til málunar eða annars konar meðhöndlunar.

Hjá Flügger átt þú að geta fengið sérhæft hreinsiefni sem hentar þínu viðfangi hverju sinni. Að auki eru sumar tegundir fáanlegar í mörgum gerðum, t.d. í úðabrúsum, sem hreinsiklútar o.fl.

Í hvað má nota hreinsiefnin?

Hreinsiefnin má nota á flestar tegundir undirlags. Þau eru hönnuð til og oftast notuð sem hluti af undirbúningsvinnu fyrir málun. Að auki geta þau í mörgum tilfellum virkað vel sem alhliða hreinsiefni á t.d. flísar, járn og málma, gler, vinyl og fleiri málaða eða lakkaða fleti sem þola vatn.

Hreinsiefnin vinna ekki aðeins vel á almennum óhreinindum heldur hafa þau mjög góða virkni gegn erfiðum fitublettum, olíum, tóbakstjöru og sóti.

Hægt er að nota hreinsiefnin á:

  • Veggi
  • Loft
  • Utanhússklæðningar
  • Málað tréverk

Hreinsiefnin má líka nota til að hreinsa pensla og málningarrúllur. Með því að huga vel að þrifum á málningarverkfærum má auka endingu þeirra og tryggja að þau séu laus málningarleyfar úr síðasta verkefni þegar þú þarft að nota þau næst.

Vegna þess hve há PH gildi eru í grunnhreinsiefnunum er mælt með að nota sérhæfð viðarhreinsiefni á timbur og tréverk. Alhliða hreinsiefnin geta valdið upplitunum á ákveðnum viðartegundum. Þau geta einnig valdið blettum á galvaniseruðu stáli og truflun í herðingu á þeim yfirmálningum sem á eftir koma.

Svona notar þú alhliða hreinsiefnin

Alhliða hreinsiefnin eru mikilvægur hluti af góðri undirbúningsvinnu og eiga þannig hlut í að tryggja bestu mögulega lokaútkomu í verkinu. Áður en þú hefst handa við að hreingera flöt sem síðan stendur til að meðhöndla áfram, skalt þú gera þér grein fyrir mikilvægi þess að velja rétt hreinsiefni fyrir þá tegund verkefnis og undirlags sem þú ert að vinna að.

Ef þú ert með hreinsiefni í fljótandi formi þarf í flestum tilfellum að blanda þau með vatni í þeim hlutföllum sem kveðið er á um í leiðbeiningum utan á brúsanum. Þegar búið er að blanda efnið rétt skal þrífa flötinn vel, t.d. með svampi. Þrífið áfram uns svampurinn er hreinn. Að því loknu skal hreinsa flötinn með hreinu vatni og leyfa honum að þorna.

Þegar flöturinn er orðinn þurr er hægt að hefjast handa við að mála eða meðhöndla frekar.




Copyright © 2026, Flügger group A/S, Islevdalvej 151, 2610 Rødovre, CVR-nr.: 32788718. All Rights Reserved.