Panellakk
Panellakk myndar filmu sem ver panelborðin og dregur fram náttúrulega byggingu viðarins. Panellakk er fáanlegt glært eða tónað og það getur verið sniðugur valkostur í stað þess að mála með þekjandi lit.

- Gefur ljósum við glæsilegt útlit
- Yfirborð sem hrindir frá sér óhreinindum
- Notist á nýjan eða slípaðan við

- Fyrir ljós tré – gulnar ekki
- Fæst í silkimatt og Hálfglansandi
- Auðhreinsanlegt yfirborð

- Gefur fallegt náttúrulegt útlit
- Óhreinindavörn á yfirborði
- Hröð og auðveld ásetning

- Gefur matta og hvíttaða áferð
- Lýsir gulnað tré
- Þolir létta hreinsun

- Besta báta-lakkið okkar
- Fæst í Hálfglansandi eða Glansandi
- Dregur fram byggingu og æðamynstur viðarins

- Finndu litinn fyrir viðinn þinn
- Hentar innan- og utandyra
- Fallegt litaendurgjöf
Að velja panellakk
Hægt er að velja milli nokkurra mismunandi efna við panellökkun, eftir því hverjar óskir þínar um lokaútlit eru. Efnin eiga það öll sameiginlegt að þau verja panelklæðninguna þína og auðvelda þrif. Efnin aðstoða jafnframt við að halda við náttúrulegri byggingu og útliti viðarins.
Glært panellakk ver gegn gulnun og dregur í staðinn fram náttúrulega byggingu viðarins. Hvíttað panellakk hentar ef þú vilt lýsa upp rýmið með hvíttaðri áferð án þess þó að fela byggingu viðarins með þekjandi málningu.
Litur og glans á panellakki
Panellakk er fáanlegt glært eða tónað. Val á lit ræðst af smekk og óskum þínum um lokaútlit.
Svona vinnur þú með panellakk
Þegar þú vinnur með panellakk þá skiptir undirvinnan miklu máli. Það er mikið atriði að undirlagið sé einsleitt og jafnt áður en hafist er handa við lökkun. Þannig má auka líkur á fallegri og endingargórði útkomu.
Ef þú ert með hvíttað lakk eða tónað lakk þá er mikilvægt að huga vel að því hvernig það er borið á. Berðu á 1-2 borð í einu og kláraðu alla leið áður en þú færir þig í næsta. Ef þú stoppar á miðju borði er hætt við að fram komi sýnileg skil eftir að efnið þornar, þar sem viðurinn drekkur litinn hratt í sig.



