Fara að aðalefni
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Flügger logo in black.
Málningarrúllur

Málningarrúllur

Málningarrúllur eru fáanlegar í mörgum stærðum og gerðum. Mikilvægast er að velja rétta rúllu fyrir þitt verkefni. Rétt rúlla skiptir ekki bara máli fyrir lokaútkomuna, heldur líka á meðan verið er að mála. Það hefur ýmsa kosti að mála með rúllu frekar en pensli. Þú ert fljótari að mála stóra fleti og það er auðveldara. Með því að rúlla þá færðu jafnari áferð og ert laus við penslaför og penslahár sem geta losnað úr penslinum. Málningarrúllur fást bæði stakar og í settum með bakka og tilheyrandi.
26 vörur
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 930 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 1.240 kr./stk.
Gæði
  • Fyrir slétta fleti
  • Gefur bestu áferðina
  • Hentar vel fyrir húsgögn, hurðir og skápahurðir
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 1.380 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 1.840 kr./stk.
Gæði
  • Fyrir hurðir, skáphurðir og innréttingar
  • Mjög slétt áferð með lágmarks rúlluförum
  • Fagleg gæði til daglegrar notkunar
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 892 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 1.190 kr./stk.
Gæði
  • Fyrir meðalgróft yfirborð
  • Gefur fallega og jafna áferð og lágmarks slettur
  • Hentar veggjum, loftum og gólfum
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 892 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 1.190 kr./stk.
Gæði
  • Fyrir gólf, veggi og loft
  • Jöfn áferð með léttri uppbyggingu
  • Fagleg gæði til daglegrar notkunar
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 704 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 939 kr./stk.
Gæði
  • Fyrir gróf yfirborð
  • Góð þekja og auðveld í notkun
  • Hentar veggjum, loftum og útiveggjum
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 855 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 1.140 kr./stk.
Gæði
  • Fyrir grófa fleti
  • Góð þekja og falleg áferð
  • Hentar veggjum, loftum og gólfum
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 704 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 939 kr./stk.
Gæði
  • Fyrir veggi og loft með grófu yfirborði
  • Langar pólýestertrefjar með mikla málningarupptöku
  • Góð áferð á hagstæðu verði
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 704 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 939 kr./stk.
Gæði
  • Fyrir grófa fleti
  • Hámarks þekja og áferð
  • Hentar til notkunar á veggi og loft
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 930 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 1.240 kr./stk.
Gæði
  • Fyrir slétta eða grófa áferð
  • Hámarks þekja og greinilegri áferð
  • Hentar öllum gerðum undirlags
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 1.755 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 2.340 kr./stk.
Gæði
  • Fín áferð, alveg eins og eftir sprautun
  • Fljótleg og einföld í notkun
  • Fullkomið fyrir slétta fleti
Sparaðu 25%
Frá 5.017 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 6.690 kr./stk.
Gæði
  • Tvöföld
  • Fyrir nákvæma vinnu
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 1.605 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 2.140 kr./stk.
Gæði
  • Málaðu alveg inn í hornið
  • Veitir góða þekju og er auðvelt í notkun
  • Hentar hornum á veggjum og loftum
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 539 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 719 kr./stk.
Gæði
  • Handhægt handfang með þrýstijafnandi gúmmíhúð
  • Passar fyrir QUICK rúllur
  • Passar á framlengingarskaft
QUICK system
Sparaðu 24%
Frá 682 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 909 kr./stk.
Gæði
  • Handhægt handfang með gúmmíklæðningu
  • Passar með málningarrúllum 10 cm / 15 cm breiðum
  • Passar á framlengingarskaft
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 3.667 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 4.890 kr./stk.
Gæði
  • Handhægt handfang með gúmmíklæðningu
  • Passar fyrir 41 cm málningarrúllu
  • Passar á framlengingarskaft
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 892 kr./sett
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 1.190 kr./sett
Gæði
  • Fyrir húsgögn og hurðir
  • Gefur fíngerða og slétta áferð
  • 10 cm málningarbakki, málningarrúlla, handfang og pensill
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 1.042 kr./sett
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 1.390 kr./sett
Gæði
  • Fyrir hurðir, skáphurðir og innréttingar
  • Allt í einu setti – tilbúið til notkunar
  • Góð áferð á hagstæðu verði
Ø38 system
Sparaðu 25%
Frá 1.905 kr./sett
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 2.540 kr./sett
Gæði
  • Gæðasett á góðu verði
  • Fyrir allar tegundir málningar
  • Fyrir öll yfirborð
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 539 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 719 kr./stk.
Gæði
  • 5 cm rúllusett með málningarbakka, málningarrúllu og handfangi
  • Gefur slétta áferð
  • Fyrir fína fleti, t.d. húsgögn og hurðir
Sparaðu 25%
Frá 3.142 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 4.190 kr./stk.
Gæði
  • Gerðu alveg skarpar brúnir milli veggs og lofts
  • Stilltu auðveldlega fjarlægðina sem þú vilt
  • Fljótlegt og auðvelt í notkun
Sparaðu 25%
Frá 2.542 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 3.390 kr./stk.
Gæði
  • Beinar og skarpar línur milli veggjar og lofts
  • Passar á Flügger skurðarrúllu
  • Auðveld í ásetningu
QUICK system
Sparaðu 25%
Frá 2.467 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 3.290 kr./stk.
Gæði
  • Auðvelt í notkun
  • Málaðu skarpar brúnir
  • Skilvirk vinnsla með tvöföldum rúllum
Sparaðu 25%
Frá 892 kr./skaft
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 1.190 kr./skaft
Gæði
  • Náðu lengra með framlengingu – 130 cm
  • Gerir málningarvinnu auðveldari og hraðari
  • Fullkomið til að ná upp í háu loftin.
Sparaðu 25%
Frá 1.567 kr./skaft
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 2.090 kr./skaft
Gæði
  • Náðu enn lengra – Tegundir: 150 eða 200 cm
  • Gerir málningarvinnu auðveldari og hraðari
  • Fullkomið til að ná upp í háu loftin.
Sparaðu 25%
Frá 3.517 kr./skaft
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 4.690 kr./skaft
Gæði
  • Lengdir : 75, 120, 220 eða 400 cm
  • Álskaft sem er bæði létt og strekt
  • Passar á rúlluskaft
Sparaðu 25%
Frá 26.242 kr./stk.
Fyrir 34.990 kr./stk.
Gæði
  • Hagnýtt skaft sem gerir málningu að leik
  • Framleitt úr koltrefjum sem gefur hámarksstyrk og stífleika
  • Passar á rúlluskaft
Sýni 26 vörur af 26

Mismunandi hlutar málningarrúllu

Það eru nokkrir mismunandi hlutar af málningarrúllu sem ber að skoða þegar verið er að velja rétta rúllu.

Það mikilvægasta er rúllan sjálf sem þarf að vera í réttri stærð með hliðsjón af umfangi verkefnisins. Handfangið þarf einnig að vera í réttri stærð svo að rúllan passi vel upp á teininn. Þú getur valið mismunandi tegundir af rúllum sem passa upp á sama handfangið. Síðan er líka hægt að velja framlengingarskaft í þeirri lengd sem hentar.

Að velja rétta rúllu

Til eru margar mismunandi gerðir af rúllum og því getur verið nokkuð snúið að átta sig á því hvaða rúllu á að nota. Eðli verkefnisins stýrir því hvers konar rúlla hentar best. Þú þarft því að vita hvað þú ætlar að mála og út frá því er rúllan valin. Ef um er að ræða stóra fleti er auðveldast og fljótlegast að nota stóra, loðna rúllu sem ber mikið efni. Ef þú ert að mála lita fleti eða mjög slétta fleti, þá er betra að velja litla rúllu með fínum hárum. Það sama gildir ef þú ert að velja rúllu í skurð meðfram kverkum eða brúnum, þá hentar betur að vera með litla rúllu. Það getur við vissar aðstæður hentað að skera með lítilli rúllu frekar en pensli þar sem þú sleppur þá við möguleg penslaför.

Þó það geti verið freistandi að velja ódýrustu rúlluna þá eru margir kostir við það að borga fyrir gæði. Hágæða málningarrúllu tekur yfirleitt í sig meira af efni, sem leiðir til þess að verkið vinnst hraðar. Eins eru minni líkur á að rúllan fari úr hárum, sem þú þarft svo að tína úr málningunni áður en hún þornar. Hágæðamálningarrúlla sem er vel þrifin eftir notkun getur enst mjög lengi og hægt er að nota hana aftur og aftur.

Gróf eða fín málningarrúlla?

Hárin í málningarrúllu geta bæði verið löng og stutt. Í daglegu tali er talað um fína eða grófa rúllu. Valið á lengd háranna fer eftir því hvað stendur til að mála. Grófari rúlla með löngum hárum hentar t.d. betur á grófa steinveggi þar sem dýptin í undirlaginu er meiri og hárin í rúllunni þurfa að ná dýpra í flötinn.

  • Ef þú ert að mála stóra fleti sem eru ósléttir eða grófir, er mælt með að nota rúllu með löngum hárum (18 - 22 mm). Þessar rúllur geta líka hentað vel til að rúlla upp spartlmálningu.
  • Ef þú ert að mála fínni fleti með jafnara yfirborði hentar betur að velja rúllu með styttri hárum (10 - 18 mm). Þessar rúllur geta líka hentað vel til að mála yfir veggfóður eða filtdúk.
  • Ef þú ert að mála flöt með alveg sléttu og lokuðu yfirborði hentar vel að velja mjög fínhærða rúllu (5 - 8 mm) Þessar rúllur eru oft úr svampi eða örtrefjaefnum (microfiber). Þessar rúllur geta t.d. hentað vel þegar verið er að lakka húsgögn, innréttingar, borðplötur, hurðar, hurðakarma eða járn og málma.

Málningarrúllur fyrir stóra fleti

Ef þú ert að mála stóra fleti eins og til dæmis veggi, loft eða gólf, er gott að velja stóra rúllu með grófum eða milligrófum hárum. Þannig rúlla tekur meira efni í sig, sem gerir það að verkum að þú þarft ekki að dýfa rúllunni eins oft í bakkann og verkið vinnst hraðar. Með því að nota stóra rúllu getur þú líka rúllað stærra svæði í einu. Með því að nota framlengingarskaft er auðveldara að ná löngum, fallegum strokum. Skaftið tryggir betri líkamsstöðu við vinnuna og flýtir fyrir verkinu.

Málningarrúllur fyrir smærri fleti

Ef þú ert að mála smærri fleti eins og húsgögn, borðplötur, hurðar, karma o.s.frv. hentar vel að nota minni rúllu. Með því að nota litla rúllu hefur þú betri stjórn á efnisdreifingunni á litlum flötum. Litlar málningarrúllur fást í mismunandi gerðum, bæði grófar með löngum hárum og fínni rúllur með stuttum hárum sem gefa fína áferð, svamprúllur og örtrefjarúllur (microfiber). Það er kostur að reyna að notast við fína rúllu sem skilur eftir sem minnst rúlluför þegar verið er að mála húsgögn, glugga, hurðar og innréttingar sem dæmi.

Áður en þú byrjar að nota málningarrúlluna

Áður en þú byrjar að nota málningarrúlluna þína er góð regla að skola hana til að koma í veg fyrir að hún skilji eftir sig laus hár í málningunni. Skolaðu hana vel í volgu eða heitu vatni og þurrkaðu hana svo með klút. Einnig er hægt að vefja málningarlímbandi utan um þurra rúlluna og taka það svo aftur af. Þannig tekur límbandið með sér þau hár sem eru laus.

Að þrífa málningarrúllu

Það er mikilvægt að þrífa rúlluna vel að notkun lokinni. Byrjaðu á að skafa eins mikla málningu og þú getur úr rúllunnu með þar til gerðu verkfæri. Það er einnig hægt að grípa með höndunum utan um rúlluna og þrýsta málningunni úr henni þannig. Að því loknu skal þrífa rúlluna vel með volgu vatni og sápu, þar til hún hættir að gefa frá sér málningu. Látið rúlluna þorna áður en henni er pakkað til geymslu.


Copyright © 2026, Flügger group A/S, Islevdalvej 151, 2610 Rødovre, CVR-nr.: 32788718. All Rights Reserved.