Skip menu
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Sölu- og afhendingarskilmálar

Þessir sölu- og afhendingarskilmálar gilda um kaup á www.flugger.is.

 

Flügger Iceland ehf
Stórhöfða 44
110 Reykjavík
Kt. 560801-2970
Sími: +354 567 4400
Vefsíða: www.flugger.is

 

Eftirfarandi skilmálar gilda, ásamt persónuverndarstefnu okkar, um kaup á vörum í gegnum www.flugger.is.


1. Gerð kaupsamnings og afhending vöru

Kaupsamningar vegna pantana sem gerðar eru á www.flugger.is eru eingöngu gerðir á íslensku.

Vörur eru afhentar á heimilisföngum á Íslandi. Á svæði 4 eru sendingar sem vega meira en 20 kg afhentar á næsta þjónustustað.

Pantanir sem berast fyrir kl. 11.00 á virkum dögum eru að jafnaði sendar samdægurs, að því gefnu að varan sé til á lager. Upplýsingar um lagerstöðu koma fram í pöntunarferlinu.

Afhendingartími er alltaf gefinn upp í virkum dögum:

  • 1–5 virkir dagar fyrir hefðbundnar pantanir.

Ef vara reynist óvænt ekki vera til á lager hefur Flügger samband við viðskiptavininn eins fljótt og auðið er til að finna lausn.

Málning er afhent á jarðhæð við lóðarmörk þar sem fast undirlag er til staðar (sendingarkostnaður allt að 1.000 kr.). Heildarsendingarkostnaður kemur alltaf fram í körfunni áður en gengið er frá pöntun. Einnig er hægt að sækja pöntun án endurgjalds í valda Flügger-verslun.

 

2. Verð

Verðin sem birtast á vefsíðunni þegar pöntun er gerð gilda um kaupin. Um er að ræða hámarksverð og verð geta verið mismunandi eftir verslunum. Öll verð eru með virðisaukaskatti en án sendingarkostnaðar. Sendingarkostnaður kemur alltaf fram í körfunni áður en gengið er frá kaupum.

 

3. Greiðsla

Hægt er að greiða fyrir pantanir á www.flugger.is með Mastercard, Visa og Apple Pay.

  • Ekkert gjald er tekið fyrir greiðslu með greiðslukorti.
  • Greiðslan er ekki skuldfærð fyrr en varan hefur verið send.
  • Ef pöntun inniheldur fleiri en eina vöru og ein þeirra er ekki til á lager er greiðslan fyrir þá vöru ekki skuldfærð fyrr en hún hefur verið send.

 

3.1 Upphæð tekin frá

Ef greitt er með alþjóðlegu greiðslukorti er upphæðin tekin frá á kortinu um leið og pöntunin er gerð. Upphæðin er frátekin þar til:

  1. greiðslan er skuldfærð þegar varan er send, eða
  2. upphæðin er losuð samkvæmt skilmálum kortaútgefanda.

Nánari upplýsingar um fráteknar upphæðir fást hjá kortaútgefanda.

 

4. Réttur til að falla frá kaupum

4.1 Frestur til að falla frá kaupum

Viðskiptavinir hafa 30 daga rétt til að falla frá kaupum sem gerð eru á www.flugger.is. Fresturinn rennur út 30 dögum eftir þann dag sem varan er móttekin.

Ef viðskiptavinur neitar að taka við vöru verður hann jafnframt að tilkynna Flügger Iceland ehf það með skýrum hætti. Tilkynningu má senda með tölvupósti á sala@flugger.com eða með því að nota eyðublaðið Hætt við kaup. Það eitt að neita að taka við vörunni, án þess að Flügger sé jafnframt tilkynnt um ákvörðunina, telst ekki fullgild tilkynning um að fallið sé frá kaupum.

 

4.2 Undantekningar frá rétti til að falla frá kaupum

Rétturinn til að falla frá kaupum gildir ekki um sérpantanir eða vörur sem eru framleiddar eða sérsniðnar samkvæmt óskum viðskiptavinar, þar á meðal litablandaða málningu.

Rétturinn gildir heldur ekki um innsiglaðar vörur sem ekki er hægt að skila af heilbrigðis- eða hreinlætisástæðum ef innsiglið hefur verið rofið eftir afhendingu.

 

4.3 Skilað í verslun

Viðskiptavinir geta skilað vörum í Flügger-verslun innan skilafrests gegn framvísun kvittunar. Vörum má skila í eftirfarandi verslanir:

Stórhöfði 44, 110 Reykjavík

Skeifan 4, 108 Reykjavík

Hafnargata 90, 230 Reykjanesbær

Njarðarnes 1, 603 Akureyri

Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður

Austurvegur 69, 800 Selfoss

 

4.4 Skilað með flutningsaðila eða pósti

Ávallt skal tilkynna þjónustuveri Flügger áður en vörum er skilað.

Tilkynningu má senda með eyðublaðinu Hætt við kaup í bréfpósti eða tölvupósti eða afhenda hana í Flügger-verslun.

Vörunni skal skila án ástæðulauss dráttar og eigi síðar en 14 dögum eftir að Flügger var tilkynnt um að fallið væri frá kaupum.

Viðskiptavinurinn greiðir allan kostnað við að skila vörunni.

 

Skilavörur skal, að undangengnu samkomulagi, senda á:

Flügger Reykjavík
Stórhöfði 44
110 Reykjavík

Berist til: Þjónustuver


Athugið! Sendingar gegn póstkröfu eru ekki mótteknar.


4.5 Ástand vöru við skil

Vörunni skal skila í sama ástandi og hún var þegar hún var móttekin. Ef vara er skemmd við skil eða hluta hennar eða upprunalegar umbúðir vantar kann að verða dregið frá endurgreiðslunni vegna verðrýrnunar.


4.6 Endurgreiðsla

Kaupverð er endurgreitt að fullu ef vörunni er skilað óskemmdri. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur ef aðeins hluta pöntunar er skilað.

Endurgreiðsla fer fram án ástæðulauss dráttar og eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynning um að fallið sé frá kaupum berst. Flügger getur þó haldið endurgreiðslunni eftir þar til varan hefur borist til baka eða viðskiptavinurinn hefur lagt fram staðfestingu á að hún hafi verið send.

Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin. Ef vöru er skilað í Flügger-verslun er endurgreitt með sama greiðslumáta gegn framvísun kvittunar.

 

5. Kvartanir vegna galla

Ef viðskiptavinur telur vöru gallaða eða hún er ekki í samræmi við það sem samið var um getur hann lagt fram kvörtun hjá Flügger.

 

Skilyrði vegna kvartana

  • Viðskiptavinur þarf að geta sýnt fram á kaupin, til dæmis með reikningi eða kvittun.
  • Kvörtunarfrestur vegna galla er almennt tvö ár frá því að neytandi veitti vörunni viðtöku. Ef vörunni, eða hlutum hennar, er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist um söluhluti er kvörtunarfresturinn fimm ár.
  • Neytandi skal tilkynna Flügger um galla án ástæðulauss dráttar frá því að hann varð gallans var eða mátti verða hans var. Fresturinn til að leggja fram kvörtun er þó aldrei styttri en tveir mánuðir frá því að neytandi varð gallans var.
  • Ef kvörtun á rétt á sér endurgreiðir Flügger hæfilegan sendingarkostnað.
  • Vöru skal skila í öruggum umbúðum og geyma skal staðfestingu á sendingunni.

Fylltu út kvörtunareyðublað Flügger sem er aðgengilegt á vefnum.

Mikilvægt er að lýsa kvörtuninni eins ítarlega og hægt er. Láttu ítarlega lýsingu og ljósmyndir sem sýna vandamálið fylgja með.

Sendu upplýsingar og myndir með tölvupósti á sala@flugger.com.

Flügger leitast við að afgreiða kvartanir eins fljótt og auðið er í gegnum þjónustuver eða næstu Flügger-verslun.

 

6. Kvartanir og úrlausn ágreinings

Ef þú vilt leggja fram kvörtun skaltu hafa samband við Flügger með tölvupósti á sala@flugger.com.

Ef ekki tekst að leysa málið með samkomulagi er hægt að vísa því til:

Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa
Borgartúni 29
105 Reykjavík
Sími: +354 510 1125
Vefsíða: www.kvth.is

Neytendur sem búsettir eru í öðru landi innan ESB eða EES og eiga í ágreiningi vegna viðskipta yfir landamæri geta leitað ráðgjafar og aðstoðar hjá Evrópsku neytendaaðstoðinni (ECC-Net).

 

7. Óviðráðanleg atvik

Flügger ber ekki ábyrgð á því að geta ekki efnt skuldbindingar sínar vegna óviðráðanlegra atvika (force majeure).

 

Flügger Iceland ehf
Stórhöfði 44
110 Reykjavík
Kt. 560801-2970
Sími: +354 567 4400
Netfang: sala@flugger.com