Rúlluspartl
Rúlluspartl og sprautuspartl fyrir heimilið – frá Flügger. Veldu milli mismunandi tegunda og þeirrar aðferðar sem hentar best til að ná fram fallegri og sléttri lokaútkomu.
6 vörur

Frá 4.690 kr./stk.
(Frá 938 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
- Borið á með rúllu eða spaða.
- Alhliða spartl fyrir þurr rými
- Létt spartl - auðvelt í ásetningu

Frá 9.890 kr./stk.
(Frá 824 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
- Vinsælt á stóra fleti
- Auðvelt að bera á og slípa
- Góð viðloðun

Frá 12.490 kr./stk.
(Frá 1.041 kr./l)
Gæði
- Hentar vel fyrir ójafnt yfirborð
- Mjög auðvelt að slípa
- Svansvottuð vara

Frá 9.890 kr./stk.
(Frá 1.541 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
- Rúlluspartl fyrir votrými
- Hluti af Flügger H2O votrýmiskerfinu
- Samþykkt fyrir samskeyti gifsplatna

Frá 8.890 kr./stk.
(Frá 741 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
- Hentar vel fyrir sléttar yfirborðsflötur
- Hægt að bera á með Airless úðatæki
- Meðalfín úðafylling

Frá 12.990 kr./stk.
(Frá 866 kr./l)
Gæði
- Hentar vel fyrir slétt yfirborð
- Hentar vel í spartsprautu
- Hægt að bera á með Airless sprautun
Sýni 6 vörur af 6
Hvað er rúlluspartl?
Rúlluspartl er eins og nafnið gefur til kynna, spartl sem hentar sérstaklega til að rúlla upp á flötinn með málningarrúllu. Þessi aðferð við spörtlun hefur nokkra góða kosti fram yfir aðrar.Þú færð mikið fyrir peninginn, þar sem rúlluspartl er í svipuðum verðflokki og flestar aðrar gerðir af spartli. Fljótlegt og auðvelt er að rúlla spartlinu upp á vegg, með svipuðum hætti og ef þú værir að rúlla með hefðbundinni málningu. Allt sem þú þarft er málningar- eða spartlrúlla, bakki og rúlluspartl. Þú dýfir einfaldlega rúllunni í bakkann og rúllar spartlinu svo upp á flötinn. Að því loknu er dregið úr spartlinu með spartlspaða. Við mælum með Filler Pro Roll, sem er hágæðarúlluspartl sem fyllir mjög vel, er svansvottað og hentar vel til notkunar á bæði loft og veggi.
Þú getur líka valið að notast bæði við rúllu- og sprautuspartl, t.d. Flügger Sandplast LSR. Kosturinn við LSR er að þú velur hvort þú vilt rúlla því, sprauta eða draga upp með spöðum.
Svona spartlar þú með rúlluspartli
Hér að neðan er allt sem þú þarft að vita um rúlluspartl og hvernig þú vinnur með það.- Gætið þess að verja gólf, húsgögn og aðra fleti sem ekki á að spartla. Fjarlægið síðan skrúfur, nagla og laust gips af veggnum.
- Dýfið spartlrúllunni lauslega í vatn. Því næst er hægt að bera spartlið í jöfnu, þykku lagi á vegginn með rúllunni (við mælum með Filler Pro Roll).
- Dreifið því næst spartlinu á allan flötinn í jöfnu lagi með þéttum strokum. Leitist við að bera spartlið á í u.þ.b. 2 mm þykku lagi - notið heldur of mikið spartl en of lítið.
- Notist við stóra rúllu á stórum flötum og skiptið í minni rúllu á minni flötum. Gott er að notast við framlengingarskaft, sér í lagi ef verið er að spartla loft eða háa veggi.
- Mikilvægt er að gæta þess að spartlið þorni ekki á meðan verið er að ljúka við flötinn. Því er mælt með að forðast að taka langar pásur á miðjum vegg.
- Þegar þú hefur lokið við að rúlla spartlinu á flötinn skaltu taka spartlspaða og draga úr spartlinu til að slétta og jafna flötinn. Góð regla er að byrja á öðrum enda flatarins og vinna sig út að gagnstæðum enda.
- Þegar spartlið hefur fengið tíma til að þorna skalt þú slípa flötinn með sandpappír (t.d. grófleika 120 -150). Mælt er með að nota rykgrímu við slípun til að verja öndunarfæri gegn slípiryki.
Get ég líka notað sprautuspartl?
Já, það er einnig hægt að rúlla sprautuspartli, þar sem þykktin á því er sambærileg hefðbundnu rúlluspartli. Ef þú þarft að spartla marga fermetra gæti verið gott ráð að kaupa eina eða tvær fötur með rúlluspartli og fylla svo á þær með sprautuspartli úr pokum eftir að föturnar hafa verið tæmdar. Þannig má draga úr umbúðakostnaði og spara pening. Sprautuspartlið í pokunum hentar svo að sjálfsögðu vel ef þú velur að heilspartla með spartlsprautu.



