Fara að aðalefni
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Flügger logo in black.
Loftamálning

Loftamálning

Loft geta upplitast með tímanum, t.d. vegna sóts frá kertum eða eldavél, gulnun eða myndun rakabletta. Með endurmálun má hinsvegar fríska upp á loftið með fljótlegum og einföldum hætti. Þá er gott að hafa í huga að loftamálning hefur allajafna lágan glans og endurkast ljóss erþví í lágmarki. Það dregur úr rúlluförum og tryggir fallegri áferð, sem endist lengur.

11 vörur
svanen13
*Ánægjuábyrgð
Frá 3.090 kr./stk.
(Frá 2.199 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Gæði
  • Best fyrir loft
  • Gljástig 2 – Mjög matt
  • Auðvelt að bera á – góð þekjugeta
svanen13
*Ánægjuábyrgð
Frá 23.990 kr./stk.
(Frá 2.399 kr./l)
Er litanlegt
Gæði
  • Best fyrir loft
  • Gljástig 2 – Mjög matt
  • Auðvelt að bera á – góð þekjugeta
svanen13
*Ánægjuábyrgð
Frá 5.890 kr./stk.
(Frá 4.395 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Gæði
  • Litirnir njóta sín best með Dekso 1
  • Gljástig 1 – Mjög matt
  • Gefur rýminu persónuleika
svanen13asthmaallergynordic
*Ánægjuábyrgð
Frá 35.490 kr./stk.
(Frá 3.549 kr./l)
Gæði
  • Veggja- og loftamálning
  • Gljástig 5 – Matt
  • Fyrsta málningin með norrænu ofnæmismerki
svanen13
*Ánægjuábyrgð
Frá 3.190 kr./stk.
(Frá 2.471 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Gæði
  • Val fagfólksins
  • Gljástig 5 – Matt með daufum gljáa
  • Okkar mest selda málning
svanen13
*Ánægjuábyrgð
Frá 8.290 kr./stk.
(Frá 2.307 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Gæði
  • Gott verð / Grunnur og málning í einni vöru
  • Gljástig 5 – Matt með daufum gljáa
  • Fyrir stofu og svefnherbergi
svanen13
Frá 19.990 kr./stk.
(Frá 2.197 kr./l)
Er litanlegt
Gæði
  • Notað fyrir Flutex Pro
  • Val fagfólksins
  • Matt hvítt yfirborð
svanen13
Frá 7.390 kr./stk.
(Frá 1.999 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Jafnt og vel mettað yfirborð
  • Hvít grunnmálning fyrir lokamálun
  • Fullkomið undirlag fyrir Perform-málningu
svanen13
*Ánægjuábyrgð
Frá 13.990 kr./stk.
(Frá 1.399 kr./l)
Gæði
  • Loft- og veggmálning
  • Litlum gljáa
  • Umhverfismerki
Frá 35.990 kr./stk.
(Frá 3.599 kr./l)
Er litanlegt
Gæði
  • Einangrunargrunnur
  • Lítill gljái
  • Þekur vel
Frá 649 kr./stk.
(Frá 1.854 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Gæði
  • 0,35 L – Veldu lit fyrir heimilið þitt
  • Hentar bæði innan- og utandyra - Auðvelt að mála yfir
  • Notaðu litaprufuna til að velja lit, ekki sem lokaáferð
Sýni 11 vörur af 11

Að velja loftamálningu

Það eru til mismunandi tegundir og leiðir við að mála loft. Hvaða aðferð verður fyrir valinu, ræðst af aðstæðum hverju sinni. Ef þú ert til dæmis að mála panelloft þá getur verið góð hugmynd að velja einangrunargrunn undir málninguna til að hindra að blæðingar úr viðnum komi í gegnum málninguna.

Gott ráð er að nota matta málningu í loft. Þannig má ná betri samfellu og jafnari áferð í loftið og draga úr hættu á rúlluförum. Mött loftamálning hentar líka betur til að bletta en málning með hærri gljáa.


Að velja lit og gljáa í loftum

Algengasti loftaliturinn er hvítur, þar sem hvít og ljós loft gera það að verkum að rýmið virkar opnara. Það er hinsvegar ekkert sem bannar það að fara í óhefðbundnari liti, t.d. til að elta stílinn á innréttingum, húsgögnum o.þ.h. Sæktu þér litainnblástur í litakortunum okkar eða í næstu verslun okkar. Ef þú ert í vafa með litavalið þá er góð regla að byrja á að taka litaprufu.

Loftamálning er allajafna með lágu gljástigi. Ástæðan er að mött málning endurkastar síður ljósi og því mun flöturinn virka einsleitari og fá jafnari áferð. Minna mun bera á rúlluförum og misfellum og auðveldara verður að bletta. Við mælum því yfirleitt með að nota málningu með lágu gljástigi til að mála loft, þannig má hámarka líkur á að áferðin verði falleg.


Svona málar þú loft

Áður en þú hefst handa við að mála loftið þarf, eins og við alla málun, að huga að góðri undirbúningsvinnu. Góður undirbúningur er lykill að góðri útkomu.

  • Fjarlægðu flagnandi eða lausa málningu með slípun og þrífðu burt fitu, sót og önnur óhreinindi sem kunna að hafa neikvæð áhrif á viðloðun málningarinnar.
  • Ef blettir eru í loftinu getur þurft að nota sót og nikótínhreinsi til að þrífa og grunna svo yfir þá með einangrunargrunni. Þannig má lágmarka hættu á að blettirnir skíni í gegn að lokinni málun.
  • Það er góð regla að mattslípa glansandi, slétta fleti og grunna áður en þeir eru málaðir. Þannig má tryggja hámarksviðloðun. Þetta getur t.d. átt við þegar verið er að mála ákveðnar gerðir loftaklæðninga eða loft sem hafa verið máluð með málningu með háum gljáa.
  • Ef skemmdir eru í lofti skal gera við þær með viðeigandi spartli, slípa og rykhreinsa áður en málað er.
  • Ef undirlagið er mjög rakadrægt getur verið góð hugmynd að grunna með Forankringsgrund rykbindigrunni.
  • Byrjið á að skera með pensli meðfram kverkum og rúllið svo loftið með málningarrúllu. Gott er að hafa rúlluna á framlengingarskafti, þannig má rúlla í lengri strokum.

Þetta þarftu til að mála loft

  • Sandpappír
  • Hreinsiefni
  • Sót og nikotínhreinsi
  • Grunn
  • Spartl
  • Forankringsgrund rykbindigrunn
  • Loftamálningu
  • Pensil
  • Málningarrúllu
  • Framlengingarskaft



Copyright © 2026, Flügger group A/S, Islevdalvej 151, 2610 Rødovre, CVR-nr.: 32788718. All Rights Reserved.