Fara að aðalefni
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Flügger logo in black.
Gipsmálning

Gipsmálning

Gipsplötuveggir og loft eru með þægilegri flötum sem hægt er að mála. Ástæðan er sú að yfirleitt er um að ræða stóra, slétta fleti sem hægt er að rúlla málningunni á í löngum strokum.

Með réttri undirbúningsvinnu og gæðamálningu getur þú verið viss um að ná jafnri og einsleitri lokaáferð á veggina og loftin.

14 vörur
svanen13
*Ánægjuábyrgð
Frá 3.090 kr./stk.
(Frá 2.199 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Gæði
  • Best fyrir loft
  • Gljástig 2 – Mjög matt
  • Auðvelt að bera á – góð þekjugeta
svanen13
*Ánægjuábyrgð
Frá 5.890 kr./stk.
(Frá 4.395 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Gæði
  • Litirnir njóta sín best með Dekso 1
  • Gljástig 1 – Mjög matt
  • Gefur rýminu persónuleika
svanen13
*Ánægjuábyrgð
Frá 5.890 kr./stk.
(Frá 3.999 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Gæði
  • Best fyrir baðherbergi
  • Gljástig 20 – Hálfmött
  • Eldhús- og votrýmismálning
svanen13
*Ánægjuábyrgð
Frá 3.190 kr./stk.
(Frá 2.471 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Gæði
  • Val fagfólksins
  • Gljástig 5 – Matt með daufum gljáa
  • Okkar mest selda málning
svanen13
*Ánægjuábyrgð
Frá 3.990 kr./stk.
(Frá 2.599 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Gæði
  • Val fagfólksins
  • Gljástig 7 – Matt með sýnilegri gljáa
  • Auðvelt að hreinsa
svanen13
*Ánægjuábyrgð
Frá 4.490 kr./stk.
(Frá 2.849 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Gæði
  • Val fagfólksins
  • Gljástig 10 – Matt með áberandi gljáa
  • Þolir hversdagslegt slit
svanen13
*Ánægjuábyrgð
Frá 8.290 kr./stk.
(Frá 2.307 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Gæði
  • Gott verð / Grunnur og málning í einni vöru
  • Gljástig 5 – Matt með daufum gljáa
  • Fyrir stofu og svefnherbergi
svanen13
*Ánægjuábyrgð
Frá 24.990 kr./stk.
(Frá 2.746 kr./l)
Er litanlegt
Gæði
  • Gott verð – grunnur og málning í einni vöru
  • Gljástig 10 – matt áferð
  • Hentar vel í forstofur og ganga
svanen13
*Ánægjuábyrgð
Frá 28.490 kr./stk.
(Frá 3.131 kr./l)
Er litanlegt
Gæði
  • Gott verð / Grunnur og málning í einni vöru
  • Gljástig 20 – Hálfmött með áberandi gljáa
  • Vinsælt fyrir eldhús og þvottahús – þolir hreinsun
svanen13
Frá 19.990 kr./stk.
(Frá 2.197 kr./l)
Er litanlegt
Gæði
  • Notað fyrir Flutex Pro
  • Val fagfólksins
  • Matt hvítt yfirborð
svanen13
Frá 7.390 kr./stk.
(Frá 1.999 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Jafnt og vel mettað yfirborð
  • Hvít grunnmálning fyrir lokamálun
  • Fullkomið undirlag fyrir Perform-málningu
Frá 35.990 kr./stk.
(Frá 3.599 kr./l)
Er litanlegt
Gæði
  • Einangrunargrunnur
  • Lítill gljái
  • Þekur vel
13
Frá 4.190 kr./stk.
(Frá 1.999 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Gegnsær grunnur
  • Tryggir góða viðloðun t.d. á spartli
  • Lekur ekki – hægt að bera á með rúllu
Frá 649 kr./stk.
(Frá 1.854 kr./l)
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Gæði
  • 0,35 L – Veldu lit fyrir heimilið þitt
  • Hentar bæði innan- og utandyra - Auðvelt að mála yfir
  • Notaðu litaprufuna til að velja lit, ekki sem lokaáferð
Sýni 14 vörur af 14

Að velja málningu á gipsplötur

Við málun á gipsplötum er yfirleitt notast við hefðbundna veggja- eða loftamálningu. Mikilvægt er að undirlagið sé tilbúið til málunar áður en hafist er handa. Góð undirbúningsvinna getur haft mikið að segja um lokaútkomuna.


Að velja lit og gljástig við málun á gipsplötum

Þegar kemur að litavalinu, þá er það aðeins ímyndunarafl þitt sem setur þér skorður. Ef þig vantar aðstoð eða hugmyndir að litum er upplagt að sækja innblástur í litakortunum frá Flügger. Það getur líka verið gott að byrja á að taka litaprufur, ekki síst ef þú ert í vafa með litavalið eða hvernig liturinn mun koma út á þínu heimili.

Þegar kemur að því að velja gljástig á gipsplötuloft er lykilatriði að málningin sé með lágu gljástigi. Þannig má lágmarka glampa í loftunum frá utanaðkomandi birtu, t.d. dagsljósi og auka líkurnar á að loftið fá einsleita, jafna áferð sem er laus við rúlluför o.þ.h. Við málun gipsveggja er ekki óalgengt að gljástigið sé aðeins hærra en á loftunum. Val á gljástigi á veggjum fer eftir aðstæðum og smekk hvers og eins, en almennt má segja að málning með hærra gljástigi skili slitsterkari og þvottheldnari filmu. Það er þó ekki algilt þar sem í dag eru til mattar málningartegundir sem skila mjög sterkri og þvottheldinni filmu.


Svona málar þú gipsplötur

Áður en hafist er handa við að mála, skal tryggja að undirlagið sé hreint, slétt og tilbúið til málunar. Það gildir hvort sem um er að ræða loft eða veggi. Undirbúningsvinnan getur verið mismunandi eftir því hvort um er að ræða nýja gipsfleti eða áður málaða fleti.

  • Ef um er að ræða áður málaða fleti skalt þú byrja á að fjarlægja alla lausa, flagnandi málningu með spaða, ef við á.
  • Að því loknu skaltu þrífa flötinn með málningarhreinsiefni, til að tryggja að flöturinn sé laus við fitu, ryk og önnur óhreinindi sem geta haft neikvæð áhrif á viðloðun. Góð hreingerning á að sjálfsögðu líka við þegar um er að ræða nýja gipsfleti.
  • Hvort sem um ræðir nýja eða áður málaða fleti þarf að huga að gipsplötusamskeytum, skrúfugötum, skemmdum o.þ.h. Spartlið í skemmdir og gangið frá samskeytum með þar til gerðum aðferðum til að tryggja að flöturinn sé jafn áður en hafist er handa við að mála. Á nýjum, ómeðhöndluðum gipsveggjum og loftum skal ganga frá samskeytum með viðurkenndum samskeytaborða og spartli.
  • Að loknum viðgerðum og spörtlun er gott að slípa yfir allan flötinn til að tryggja að undirlagið sé einsleitt fyrir málun. Ekki má slípa beint á samskeytaborða, þar sem það getur valdið ójöfnum sem sjást eftir málningu. Þrífið að lokinni slípun til að tryggja að flöturinn sé laus við slípiryk.
  • Til að tryggja góða viðloðun málningar á gips skal grunna plöturnar áður en málað er. Með því má líka draga úr líkum á litamisfellum á yfirborðinu.
  • Þegar undirbúningsvinnunni er lokið er hægt að fara að huga að málun. Alltaf er mælt með að mála a.m.k tvær umferðir til að tryggja jafna áferð og góða þekju. Þannig færðu líka þykkari, slitsterkari filmu.
  • Byrjið á að mála kverkar með pensli. Að því loknu er gott að rúlla stóra fleti með góðri málningarrúllu á skafti. Góð regla er að rúlla "blautt í blautt", til að tryggja jafna efnisdreifingu og minnka líkur á rúlluförum og litamisfellum.

Þetta þarft þú til að mála gipsplötur

  • Málningarhreinsiefni
  • Fínan sandpappír
  • Grunn
  • Lofta - eða veggjamálningu
  • Pensil
  • Málningarrúllu
  • Framlengingarskaft



Copyright © 2026, Flügger group A/S, Islevdalvej 151, 2610 Rødovre, CVR-nr.: 32788718. All Rights Reserved.