Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Hanskar, grímur og gleraugu

Góður hlífðarbúnaður, eins og hanskar og grímur er ómissandi þegar verið er að þrífa, slípa, mála o.þ.h. Vinnuhanskar og grímur til hlífðar öndunarfærum, fást í mörgum mismunandi gerðum, sem henta fyrir mismunandi verkefni og aðstæður. Þú ættir því að geta fundið réttan hlífðarbúnað hjá okkur og gengið í verkið án þess að hafa áhyggjur af því að skaða hendur, húð eða öndunarfæri.
13 vörur
Bluestar Rykkgríma með Ventli - 5 stk.
Frá 3.990 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Bluestar Rykkgríma án Ventils - 5 stk.
Frá 2.490 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Moldex halvmaske - Model 5230
Frá 12.490 kr.
Einnota Yfirjakki - Bluestar
Frá 4.190 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Nítríl Hanski Kemi - Bluestar
Frá 1.890 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Öryggisgleraugu Flexi A-D - Bluestar
Frá 5.390 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Sýni 13 vörur af 13

Hanskar

Vinnuhanskar fást í mismunandi stærðum og gerðum sem henta við mismunandi aðstæður. Hjá Flügger ættir þú að geta fundið þá hanska sem henta best hverju verki. Hanskarnir eru að sjálfsögðu fáanlegir í mismunandi stærðum. Rétt stærð tryggir að hanskarnir sitji þægilega á höndum þínum og veiti rétta vernd.

Málarahanskar

Málarahanskar eru hanskar úr polyester eða nylon efnum, og eru oftast með PU húðun á fingurgómum og innan í lófum. Málarahanskar hlífa höndunum frá málningarslettum, sem geta ert húðina, á meðan þú málar. Þú sparar þér jafnframt tíma við að þurfa að þrífa málningu af höndunum að verki loknu. Málarahanskar henta einnig vel til annarra verka, t.d. við veggfóðrun, í viðarvörn o.s.frv.

Heimilishanskar

Heimilishanskar fást í mismunandi gerðum, t.d. hanskar úr vinyl og nitrile. Þessir hanskar henta t.d. vel við þrif þar sem þeir halda vatni og ertandi hreinsiefnum frá húðinni. Hanskarnir eru úr þunnum efnum, þeir eru teygjanlegir og sitja þétt að höndinni og eru þar af leiðandi ekki hamlandi við vinnu. Þeir henta því sérlega vel í undirbúningsvinnu fyrir málun.

Þú getur m.a. valið milli þessara hanska:

  • Málarahanskar
  • Vinylhanskar
  • Nitrilhanskar

Grímur

Mikilvægt er að huga að því að vera með grímu þegar verið er að þrífa, slípa eða mála. Öndunarfæragríma kemur í veg fyrir innöndun á óæskilegum gufum, t.d. frá hreinsiefnum eða málningu. Gríma kemru líka í veg fyrir að þú andir að þér rykögnum sem hanga í loftinu á vinnusvæðum. Þar má sem dæmi nefna, sprautuúða eða slípiryk. Okkur finnst sjálfsagt að breiða hlíðarplast yfir húsgögn og innréttingar til að vernda þau frá málningu og rykögnum en okkur hættir til að gleyma öndunarfærunum okkar sem eru ekki minna mikilvæg. Góð gríma veitir öndunarfærum nauðsynlega vörn gegn rykögnum sem skerða loftgæði þar sem verið er að slípa t.d. timbur eða gips.

Veldu rétta grímu

Það er mjög mikilvægt að bera grímu þegar verið er að vinna með kemísk efni sem gefa frá sér skaðlegar gufur, við slípun, málun eða þegar verið er að rífa niður veggi o.þ.h. En grímur fást í mismunandi gerðum sem hannaðar eru fyrir mismunandi aðstæður.

Þú getur valið um allt frá einfaldri rykgrímu til gasgrímu með efna- og/eða ryksíum. Sumar gasgrímur eru líka búnar mismunandi tegundum af síum, sem veita vörn gegn mismunandi gufum. Hægt er að fá grímu með útskiptanlegum síum og þannig tryggja að gríman sé að veita rétta vörn hverju sinni.

Óháð því hvers konar grímu þú ert að nota, er mikilvægt að huga að því að gríman liggi þétt upp að andlitinu til að tryggja að hún veiti hámarksvernd.

Þú getur m.a. valið um:

  • Rykgrímu
  • Gasgrímu

Góð loftun á vinnustað

Jafnvel þó sért með góða öndunarfæragrímu er líka mikilvægt að huga að góðri loftun á vinnusvæðinu. Hafðu glugga og/eða hurðir opnar eins og kostur er á eða taktu þér vinnuhlé til að opna út og lofta um. Þannig má hreinsa bæði ryk og gufur úr loftinu og minnka hættu á innöndun skaðlegra efna.