Látleysi, fagurfræðileg skynsemi og mikil ást á endurnýtingu
Látleysi, fagurfræðileg skynsemi og mikil ást á endurnýtingu einkenna innanhússhönnun 111 fm íbúðarinnar í Kristjánshöfn.
Upprunaleg smáatriði
Þegar þú kemur inn í íbúð Freddie og Maya hrífst þú af lofthæðinni og stóru háu gluggunum sem bjóða bæði sólarljósi og lífi Kristjánshafnar inn. Það hefur þó tekið nokkra vinnu að endurheimta gömlu sálina og fagurfræðina, því þegar hjónin tóku við íbúðinni hafði fyrr eigandi lækkað loftin um 1 metra og gluggarnir höfðu verið faldir með stóru innbyggðu húsgagni sem skyggði á útsýnið yfir Torvegade. Með mikilli þrautseigju og ást á sögunni, þá upprunalegu útlitinu, þá náðu þau að kalla fram sögu og mikilvæg smáatriði sem tengdust upprunalegu útliti íbúðarinnar tilbaka.
Fimm lög af gamalli málningu
Í ferlinu að kalla fram upprunalegu fegurð íbúðarinnar, þurfti að slípa allt tréverkið. Undir fimm lögum af málningu kom í ljós innsti liturinn - fallegur, daufur grænleitur litur og Freddie var ekki í vafa um að þessi litur myndi prýða íbúðina aftur. Allt tréverk var því málað í "Cool Khaki" sem Freddie, í samvinnu við hönnunarteymi Flügger, komst að væri mjög nálægt upprunalega litnum.
Mikil ást á endurnýtingu
Hátt til lofts
Hjá Freddie og Mayu er mjög hátt til lofts og ekki bara í bókstaflegri merkingu. Hjá þeim eru engar innanhússhönnunarkreddur heldur er heimili þeirra sönnun þess að miklir kontrastar eða andstæður geta skapað samhljóm. Þegar parið hóf sambúð komu í ljóst að þeirra innanhúss still var mjög ólíkur. Freddie með sinn retro stíl, í sterkum litum, dökkan við, með mikilli grafískri list og krómuð smáatriði. Stíll Mayu var meira lífrænn, með ljósum við, messing smáatriði, jarðlitir og fljótandi form.
Afrakstur samrunans er lifandi og hvetjandi heimili sem endurspeglar ást parsins og virðingu þeirra gagnvart hvort öðru.
Útsýninu boðið inn
Eins og að fá hlýtt faðmlag
Svefnherbergi parsins er rólegt mótvægi við stóru, björtu stofuna. Þegar maður gengur hingað inn er það eins og að fá hlýtt faðmlag. Loftið og veggirnir eru máluð í hlýja "Rouge" litnum til að skapa "kassalagaða umgjörð", eins og Freddie orðar það, og af sömu ástæðu hafa þau valið að varðveita niðurtekið loftið.
Svefnherbergið er hannað til að skapa þá upplifun að friður sé í herberginu til að passa uppá svefninn og því er ekkert sjónvarp þar og aðeins nokkrar myndir á veggjunum.
Sérvaldir Flügger 80 litir
Þrjú góð ráð um liti innblásin af Freddie
- Þegar þú velur liti fyrir heimilið þitt geturðu tekið tillit til þess sem þú sérð í gegnum gluggana á herberginu sem þú ætlar að mála. Það er áhugaverður innblástur í litavali.
- Málaðu allt tréverk á heimilinu í sama lit til að búa til sameiginlegan þráð í gegnum allt heimilið.
- Málaðu loft og veggi í sama lit til að búa til notalegt "ferkantað rými".
Myndirnar í greininni eru teknar af:
Mathias Haugaard Whoop – Finndu heimasíðu hans hér