Fara að aðalefni
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Flügger logo in black.

Flügger 80

80 litir með tímalausri hönnun og samhljómun

Nýja litakortið samanstendur af 80 fallega samhljómandi litum sem styðja allir hvern annan.

Ef þú velur einn eða fleiri liti úr kortinu er þér tryggð glæsileg og samræmd útkoma.

Sköpun litakortsins | Talað um liti | Litagæði | Litirnir

Flügger 80 colour card.

Skreyttu með Flügger 80

Með nýju Flügger 80 litunum færðu frelsi til að leika þér með mismunandi samsetningar og skapa rými sem endurspegla þinn einstaka stíl.

Spisestue og køkkenområde med beige vægge, mørkegrønne paneler og dørkarme, lyse træmøbler og klassiske stukdetaljer.

Lund FL8030 er sterkur grænn með örlítilli rykugri áferð. Dýpt þess og náttúruleiki leiða hugann að gróskumiklum skandinavískum skógum, á meðan lúmskur karakter gefur honum klassískan blæ.

Bright dining area with light grey walls, yellow sheer curtains, a white window and a table with lemons, glasses and a vase of flowers.

Bornholm FL8040 er ljós gráblár litur með rólegum blæ. Svalir undirtónar og mild rykug áferð veita honum róandi og frískandi karakter í senn.

Kitchen with walls, cabinets and door painted in the muted blue-green colour Mariana FL8046. White furniture and a pendant lamp create contrast with the coloured surfaces, while the wooden floor adds warmth.

Mariana FL8046 er hjartfólgin blágrænn litur sem vekur upp minningar um hafið með svölum svip sínum. Þessi litur er í senn sterkur og þögull og fær dýpt sína frá dökkum litarefnum, á meðan lúmskur undirtónn af grænum og gulum gefur honum örlítið rykugan svip.

Corner of a bright room with walls painted in the warm terracotta colour Sienna FL8064. A light wooden shelf with books and ceramics, a large window with white curtains and light panels create an inviting and harmonious atmosphere.

Sienna FL8064 er hlýr jarðlitur með sterkar tilvísanir í náttúruna. Liturinn fær rauðbrúnu litbrigðin frá járnoxíðum sem veita honum brennandi, terracotta-líkindi og eiginleika.

Minimalist living room with walls painted in the warm greige colour Navigli FL8069. Light wooden floors, a low wooden shelving unit, a solid wood coffee table and simple decorative elements give the room a calm and timeless look.

Navigli FL8069 er ljós, jarðbundinn ”beige” litur. Næmur bleikur blær gefur Navigli mýkt sem gerir hann tilvalinn fyrir herbergi þar sem óskað er eftir rólegri stemningu.

Bedroom with walls painted in the warm beige colour Croissant FL8071. The ceiling is painted dark green, and light curtains, bedding in ochre-yellow shades and daylight from a large window create a calm and cosy atmosphere.

Croissant FL8071 er jarðgulur litur. Hann fær sinn náttúrulega blæ frá undirtónum leirlita og grænna tóna, sem í sameiningu skapa hlýjan, rykugan svip sem minnir á sólhitaðan sand.

Hannað af þéttu samstarfi hönnunarteymis Flügger og litasérfræðinga

Nýja litakortið innanhúss er unnið í náinni samvinnu hönnunarteymis Flügger og litasérfræðinga. Flügger 80 litakortið er afrakstur blöndu af ítarlegri litaþekkingu, skapandi hæfileikum og ástríðu fyrir hönnun.

Með yfirgripsmikilli greiningu á litatísku, litastraumum og óskum neytenda hefur hönnunarteymi okkar hannað liti í tónum sem þykja bæði nútímalegir og bjóða uppá óendanlega möguleika. Ásamt þekkingu litasérfræðinga okkar á öllu frá gæðum litarefna til samspils litapasta og grunnstofna í litum hafa 80 litir verið búnir til með tímalausum gæðum í framúrskarandi þekju.

Skoðaðu 80 fallegu litina
Colour samples and colour cards for choosing wall paint, with a hand comparing blue, pink, purple and earth-toned shades.

Bestu litagæðin

Allir 80 litirnir:
  • hafa lágt metameri, sem þýðir að þeir líta nánast eins út við mismunandi birtuskilyrði.

  • henta bæði fyrir málningu innandyra og utandyra, þar sem þeir eru ljósþolnir og halda lit sínum vel, jafnvel í sterku sólarljósi.

  • eru byggðir á VOC-fríum litarefnum.

VOC stendur fyrir rokgjörn lífræn efnasambönd (Volatile Organic Compounds). Hátt magn VOC í málningu eða öðrum vörum getur haft neikvæð áhrif á loftgæði og umhverfi. Þess vegna er mikilvægt að velja vörur þar sem VOC-innihald uppfyllir gildandi kröfur.

Sjáðu alla Flügger 80 litina
Pile of red colour pigment on a light grey background, illustrating pigments used in paint production.

Veldu málningu fyrir nýju litina - Dekso 1 Ultramatt

Til að fá sem bestu útkomuna mælum við með Dekso 1. Ofurmatta loft og veggjamálningin okkar með endurskinslausri áferð, sem þýðir að það er ekkert endurkast á ljós og tryggir í leiðinni fullkomna litaupplifun. Málningin er bæði þrifheldin og slitþolinn þannig að liturinn lítur fallega út í langan tíma.

Kauptu Dekso 1 Ultramatt
Image of Dekso 1 from Flügger and paint brushes on a grey table.
Copyright © 2026, Flügger group A/S, Islevdalvej 151, 2610 Rødovre, CVR-nr.: 32788718. All Rights Reserved.