Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

"Ég lít á heimilið mitt sem leikvöll þar sem ég get tekið áhættu og prófað nýja hluti."

 

Íbúð Nicolai Larsen er er ekki bara heimili heldur líka vettvangur sköpunar. Sem stílisti og rýmishönnuður er hann vanur að sjá tækifæri sem hann nýtir til að skapa breytingar. Þess vegna hefur íbúðin fengið ákveðna yfirhalningu síðan hann flutti inn fyrir þremur árum.

Komdu inn og heimsæktu heimili hans og sambýlismanns hans Christian. Rólegir litir og handverk úr mörgum ferðalögum þeirra einkenna heimilið og skapa ákveðinn glæsileika, sem og persónulegt yfirbragð.

Nicolai Larsen
28 ára
Stílisti og rýmishönnuður.
Eldhúsið í 63 m2 íbúð í Kaupmannahöfn.

Nýir litir fyrir nýtt upphaf

Áður voru gluggakarmarnir rauðir. Íbúðin hefur verið tekin í gegn, máluð upp á nýtt, með nýjum litum. Þegar parið byrjaði að búa ákváðu þeir að fara í algjört ”make-over” á nýja heimilinu. Þeim langaði til að hefja sambúðina á að heiðra sambandið sitt og marka nýja lífið þeirra saman. Þeir völdu því alveg nýja litapallettu fyrir heimilið og skiptu út nokkrum húsgögnum í leiðinni - fyrir nýja en áður notaða hluti. Nicolai og Christian versla nefnilega mikið á nytja- og flóamörkuðum. Það sem ákveðið er að selja er selt annað hvort í Instagram-verslun Nicolai eða í verslun Christians. Þeir vilja endurnýta eins og hægt er.

Litirnir í Flügger 80 litakortinu

Þrjú ráð frá Nicolai

  1. Notaðu dökkan lit í loftinu til að skapa hlýja og notalega stemningu. Með ljósari lit á veggjum færðu gott jafnvægi og spennandi andstæðu í rýmið.
  2. Notaðu mismunandi litbrigði úr sömu litafjölskyldu á bæði veggi og loft til að búa til samhangandi þráð um allt heimilið.
  3. Endurnýjaðu og frískaðu upp á heimilið með nýjum litum. Það getur skapað allt aðra stemningu og á sama tíma, eins og í tilfelli Nicolai og Christian, markað nýtt upphaf á ákveðnum tíma á lífsskeiðinu.