Panelmálning
Að mála tréverk og panelklæðningar getur gert mjög mikið fyrir upplifun og heildarútlit heimilisins. Í mörgum tilfellum sleppir fólk því að mála tréverkið þegar verið er að endurmála á heimilinu. En ef þú málar t.d. panelborðin í loftinu þá njóta aðrir málaðir fletir sín enn betur í rýminu.
Að velja panelmálningu
Veldu málningu sem hentar á tréverk innandyra þegar þú málar panelloft eða viðarpanel. Hægt er að velja milli margra mismunandi tegunda af málningu, sem gefur þér marga möguleika varðandi gljástig og áferð. Ekki er óalgengt að fólk vilji mála bera viðarfleti inni á heimilinu í lit. Eins er hægt að fara þá leið að hvítta í stað þess að mála þekjandi. Þannig má fá hálfþekjandi hvíta áferð sem felur ekki viðaræðar og byggingu viðarins. Aðrir kostir eru að lakka með panellakki eða bæsa.
Að velja lit og gljástig á panelmálningu
Algengast er að viðarpanelar, hurðar og karmar sé málaðir hvítir en það getur líka komið skemmtilega út að mála þessa fleti í sama lit og veggirnir. Eins getur skapast skemmtileg stemming í rýminu með því að notast við andstæður í litavali milli veggja og karma.
Það skiptir miklu að velja rétt gljástig á panelmálninguna. Hér gildir að því hærra sem gljástigið er, þeim mun meira mun flöturinn glansa að lokinni málun.
Þú getur sótt þér innblástur í litakortunum okkar eða í næstu verslun. Ef þú ert í vafa um litavalið þá getur verið gott að byrja á að taka litaprufu.
Svona málar þú með panelmálningu
- Byrjaðu á að þrífa burt fitu, ryk og önnur óhreinindi með málningarhreinsiefni.
- Það er yfirleitt góð regla að mála með grunnmálningu áður en þú málar með lokamálningunni. Ekki síst þegar verið er að mála timbur. Grunnmálningin hjálpar ekki aðeins til með þekju heldur má einnig, með því að nota einangrunargrunn, draga úr líkum á því að blettir frá kvistum o.þ.h. verði sýnilegir að verki loknu.
- Ef einhverjar skemmdir eða sprungur eru í viðnum skal gera við með spartli og pússa jafnt áður en málað er.
- Þegar þú málar panel er mikilvægt að mála með löngum strokum, í sömu átt og borðin liggja. Reyndu að tryggja jafna dreifingu efnis og gættu þess að taka ekki pásur á miðju panelborði. Þannig má hámarka líkur á jafnri og einsleitri áferð.
- Slípaðu létt með fínum sandpappír á milli umferða til að auka líkur á jafnri og sléttri áferð. Mundu að fjarlægja slípryk áður en hafist er handa á næstu umferð.
Litir þekja misvel og því má búast við því að einhverjir litir kalli á aukaumferð.
Þetta þarftu til að mála panel
- Málningarhreinsiefni
- Spartl
- Sandpappír
- Grunnmálningu
- Pensil