Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Ofnamálning

Ofnarnir á heimilinu geta með tíð og tíma látið á sjá. Með ofnamálningu er auðvelt að fríska upp á þá og gefa þeim nýtt útlit.

9 vörur
Viðarmálning – Interior High Finish 90 Flügger
Frá 5.090 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Áhrifamálning – Flügger Trend Edition
Frá 6.090 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Málmgrunnur – Metal Pro Multiprimer Flügger
Frá 2.640 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Litapróf - Þekjandi
Frá 599 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Sýni 9 vörur af 9

Að velja málningu á ofna

Ofnamálning er hitaþolin málning sem er sérstaklega ætluð til notkunar á ofna. Ofnamálningin þolir stöðugan hita allt að 80 gráðum.

Þegar þú velur málningu fyrir ofn er mikilvægt að þú veljir hitaþolna akrýlmálningu eða akrýllakk sem er sérstaklega hannað til að þola hitann. Ef notuð er hefðbundin málning á ofn, má búast við því að hún gulni af völdum hitans með tímanum.

Ofnamálninguna skal bera á með pensli eða rúllu, eftir því hvort hentar betur hverju sinni.

Nýrri gerðir ofna hafa yfirleitt sléttar hliðar, sem gerir það verkum að auðvelt er að mála þá með pensli eða rúllu.

Það getur verið gott að nota sprautu eða ofnasprey á eldri gerðir ofna, sem oft eru ósléttir að framan og erfiðari að mála með pensli eða rúllu. Það á bæði við um grunninn og málninguna. Við sprautun þarf að gæta þess að fjarlægðin frá ofninum sé rétt til að málningin dreifist jafnt og rétt.


Að velja lit og gljástig á ofnamálningu

Ofnamálning er fáanleg í mörgum litum. Þú getur sótt þér innblástur í litakortunum okkar eða í næstu verslun Flügger.

Ofnamálningin er aðeins fáanleg í einu gljástigi.


Svona málar þú ofna

Vönduð undirbúningsvinna er, líkt og við alla málun, grunnforsenda þess að útkoman verði í samræmi við væntingar. Forvinnan eykur líkur á fallegri lokaáferð og eykur endingu. Með réttum undirbúningi og góðri forvinnu má þannig lengja líftíma ofnanna á heimilinu.

  • Fjarlægðu óhreinindi, ryk, fitu o.þ.h. af ofninum með hreinsiefni. Mundu að þvo á eftir með hreinu vatni til að fjarlægja sápuleifar.
  • Fjarlægðu eldri, lausa eða flagnandi málningu með spaða, sköfu eða stálbursta. Ekki er þörf á að fjarlægja gamla málningu sem hefur góða viðloðun við ofninn, með þessum hætti. Nóg er að pússa hana niður með sandpappír.
  • Slípaðu því næst flötinn til að losna við ryð og síðustu leyfarnar af gömlu málningunni. Slípunin mattar flötinn og gerir það að verkum að málningin mær betri viðloðun.
  • Verjið svæði í kringum ofninn sem ekki á að mála, sér í lagi ef notast er við sprautu eða úðabrúsa.
  • Grunnið ofninn einu sinni með grunnmálningu áður en þið málið með ofnamálningunni. Grunnurinn nær betri viðloðun og gerir það að verkum að málningin bindur sig fastar. Ef eitthvað ryð er enn sýnilegt á ofninum eftir slípun getur verið gott að nota ryðvarnargrunn yfir þá bletti. Þannig má draga úr líkum á því að ryðið komi í gegnum málninguna.
  • Þegar þú málar ofna getur verið gott að byrja á að mála bakhliðina, horn, kanta og erfið svæði, og enda á að mála framhliðina. Málaðu með löngum, vönduðum strokum. Ef þú ert að sprauta málningunni þá er mælt með að halda 25-30 cm fjarlægð frá sprautu í ofninn. Úðaðu málningunni í þunnu lagi til að koma í veg fyrir að hún leki.

Þetta þarftu til að mála ofna

Það er mismunandi hvaða verkfæri þarf, eftir því hvaða aðferð er beitt við málunina. Undirbúningsvinnan er þó alltaf eins, óháð því hvort þú sprautar, penslar eða rúllar.

  • Málningarhreinsiefni
  • Spaði, skafa eða stálbursti
  • Sandpappír
  • Ryðtefjandi grunnur
  • Grunnmálning
  • Ofnamálning
  • Lítill pensill
  • Málningarrúlla