Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Hurðamálning

Það getur verið kostnaðarsamt að skipta um innihurðar á heimilinu. Það má með auðveldum og ódýrum hætti fríska upp á gamlar innihurðar með hurðamálningu frá Flügger. Allt sem þarf til er góð undirbúningsvinna og réttu efnin.

11 vörur
Viðarmálning – Interior High Finish 90 Flügger
Frá 5.090 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Viðloðunargrunnur – Interior Fix Primer Flügger
Frá 2.790 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Áhrifamálning – Flügger Trend Edition
Frá 6.090 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Litapróf - Gegnsætt
Frá 599 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Sýni 11 vörur af 11

Að velja hurðamálningu

Notaðu innahússlakkmálningu fyrir innihurðar, hurðakarma og lista. Með því að nota góða akrýllakkmálningu með mikilli fyllingu má ná fram betri hulu og aukinni lagþykkt og minnka þannig líkur á að málningin leki eða renni til. Einnig má nota hefðbundna trémálningu á innihurðar, hurðakarma og lista.


Val um lit og gljástig á hurðar

Algengasti liturinn á innihurðar er hvítur. En það má líka breyta yfirbragðinu í rýminu með því að lakka hurðarnar í lit. Ekki síst ef hurðar og karmar eru í sama lit og veggirnir. Einnig má ná fram skemmtilegum áhrifum með því að hafa ákveðnar andstæður í litavali milli veggja og hurða.

Gljástigið er mjög mikilvægt þegar kemur að því að velja rétta lakkið á innihurðarnar. Algengast er að nota hálfgljáandi áferð (gljástig 20) en hægt er að fá hurðalakk í mörgum gljástigum, allt frá möttu upp í háglans. Þumalputtareglan er að því hærra sem gljástigið á málningunni er, því meiri glans verður á hurðunum að verki loknu.

Hvort sem þú kýst að halda þig í hefðbundnari, hvítum litum eða vilt fara út fyrir boxið og skoða litríkari leiðir, er gott að fá innblástur í litakortunum okkar, annað hvort á vefsíðunni eða í næstu verslun. Ef þú ert í vafa með litavalið getur verið gott ráð að byrja á að taka litaprufu og upplifa litinn í því umhverfi sem hann á að vera.


Svona málar þú með hurðamálningu

Líkt og með alla málningarvinnu skiptir undirbúnigurinn miklu máli. Það er auðveldara að lakka hurðarnar á hjörunum þar sem þá er hægt að mála báðar hliðar samtímis. Þó að það gæti virkað þægilegra að taka hurðarnar af hjörunum og mála þær liggjandi fylgir því alltaf töluverð aukavinna að taka þær af og setja þær svo aftur á. Þegar hurðar eru lakkaðar liggjandi er líka aukin hætta á að lagþykktin verði meiri sem getur leitt til þess að erfitt verður að fá hurðarnar til að passa aftur inn í karmana.

  • Fyrsta skrefið er að þrífa hurðarnar til að koma í veg fyrir að óhreinindi, s.s. húðfita o.þ.h. sé til staðar. Að því loknu skal slípa allar hliðar með fínum sandpappír. Mundu að þrífa aftur að lokinni slípun til að fjarlægja allt slípiryk.
  • Með því að nota góðan grunn þá tryggir þú að málningin nái góðri viðloðun við hurðina. Ef þú ert að mála dökkar hurðar með hvítum lit, mun grunnurinn líka hjálpa til við að ná góðri þekju.
  • Ef það eru kvistir í hurðinni er gott ráð að nota einangrunargrunn til að hindra að það glitti í kvistina í gegnum málninguna.
  • Það getur verið gott ráð að slípa létt yfir fyrstu umferð af grunninum til að slétta mögulegar ójöfnur. Til að ná fram bestu mögulega áferð er hægt að slípa með 150-180 sandpappír milli allra umferða. Mundu alltaf að fjarlægja slípiryk eftir slípun.
  • Til að tryggja jafna dreifingu efnis á hurðaflekanum skal nota rúlla þvert og endilegt á flekann í löngum strokum. í lokaumferðinni skal rúlla flekann langsum með löngum strokum til að hindra ójöfnur og rúlluför. Notaða rúllu með svipuðum hætti á hliðarnar. Ef hurðin er með útskurði eða sambærilegum smáatriðum getur verið nauðsynlegt að nota lítinn pensil fyrir þau svæði sem rúllan nær ekki til.

Þetta þarftu til að mála innihurðar

  • Hreinsiefni
  • Sandpappír
  • Grunnur
  • Lakkrúlla
  • Lítill pensill