Gipsmálning
Gipsplötuveggir og loft eru með þægilegri flötum sem hægt er að mála. Ástæðan er sú að yfirleitt er um að ræða stóra, slétta fleti sem hægt er að rúlla málningunni á í löngum strokum.
Með réttri undirbúningsvinnu og gæðamálningu getur þú verið viss um að ná jafnri og einsleitri lokaáferð á veggina og loftin.
Að velja málningu á gipsplötur
Við málun á gipsplötum er yfirleitt notast við hefðbundna veggja- eða loftamálningu. Mikilvægt er að undirlagið sé tilbúið til málunar áður en hafist er handa. Góð undirbúningsvinna getur haft mikið að segja um lokaútkomuna.
Að velja lit og gljástig við málun á gipsplötum
Þegar kemur að litavalinu, þá er það aðeins ímyndunarafl þitt sem setur þér skorður. Ef þig vantar aðstoð eða hugmyndir að litum er upplagt að sækja innblástur í litakortunum frá Flügger. Það getur líka verið gott að byrja á að taka litaprufur, ekki síst ef þú ert í vafa með litavalið eða hvernig liturinn mun koma út á þínu heimili.
Þegar kemur að því að velja gljástig á gipsplötuloft er lykilatriði að málningin sé með lágu gljástigi. Þannig má lágmarka glampa í loftunum frá utanaðkomandi birtu, t.d. dagsljósi og auka líkurnar á að loftið fá einsleita, jafna áferð sem er laus við rúlluför o.þ.h. Við málun gipsveggja er ekki óalgengt að gljástigið sé aðeins hærra en á loftunum. Val á gljástigi á veggjum fer eftir aðstæðum og smekk hvers og eins, en almennt má segja að málning með hærra gljástigi skili slitsterkari og þvottheldnari filmu. Það er þó ekki algilt þar sem í dag eru til mattar málningartegundir sem skila mjög sterkri og þvottheldinni filmu.
Svona málar þú gipsplötur
Áður en hafist er handa við að mála, skal tryggja að undirlagið sé hreint, slétt og tilbúið til málunar. Það gildir hvort sem um er að ræða loft eða veggi. Undirbúningsvinnan getur verið mismunandi eftir því hvort um er að ræða nýja gipsfleti eða áður málaða fleti.
- Ef um er að ræða áður málaða fleti skalt þú byrja á að fjarlægja alla lausa, flagnandi málningu með spaða, ef við á.
- Að því loknu skaltu þrífa flötinn með málningarhreinsiefni, til að tryggja að flöturinn sé laus við fitu, ryk og önnur óhreinindi sem geta haft neikvæð áhrif á viðloðun. Góð hreingerning á að sjálfsögðu líka við þegar um er að ræða nýja gipsfleti.
- Hvort sem um ræðir nýja eða áður málaða fleti þarf að huga að gipsplötusamskeytum, skrúfugötum, skemmdum o.þ.h. Spartlið í skemmdir og gangið frá samskeytum með þar til gerðum aðferðum til að tryggja að flöturinn sé jafn áður en hafist er handa við að mála. Á nýjum, ómeðhöndluðum gipsveggjum og loftum skal ganga frá samskeytum með viðurkenndum samskeytaborða og spartli.
- Að loknum viðgerðum og spörtlun er gott að slípa yfir allan flötinn til að tryggja að undirlagið sé einsleitt fyrir málun. Ekki má slípa beint á samskeytaborða, þar sem það getur valdið ójöfnum sem sjást eftir málningu. Þrífið að lokinni slípun til að tryggja að flöturinn sé laus við slípiryk.
- Til að tryggja góða viðloðun málningar á gips skal grunna plöturnar áður en málað er. Með því má líka draga úr líkum á litamisfellum á yfirborðinu.
- Þegar undirbúningsvinnunni er lokið er hægt að fara að huga að málun. Alltaf er mælt með að mála a.m.k tvær umferðir til að tryggja jafna áferð og góða þekju. Þannig færðu líka þykkari, slitsterkari filmu.
- Byrjið á að mála kverkar með pensli. Að því loknu er gott að rúlla stóra fleti með góðri málningarrúllu á skafti. Góð regla er að rúlla "blautt í blautt", til að tryggja jafna efnisdreifingu og minnka líkur á rúlluförum og litamisfellum.
Þetta þarft þú til að mála gipsplötur
- Málningarhreinsiefni
- Fínan sandpappír
- Grunn
- Lofta - eða veggjamálningu
- Pensil
- Málningarrúllu
- Framlengingarskaft