Litaprufur
Loft- og veggjamálning
Gólf
Viðarumhirða
Skrautmálning
Viðarvörn
Járn
Grunnur
Kítti / þéttiefni
Skrautfylling
Öryggi
Flügger Wood Tex
Alvöru kærleikur á tré!
Tréverk er mikilvægur þáttur í daglegu lífi. Það er lifandi efni sem við verðum að hlúa að og í sameiningu - vegna viðarins, fyrir okkur, náttúrunnar og komandi kynslóða.
Okkur langar að hjálpa þér að hugsa vel um viðinn þinn. Þess vegna höfum við safnað áhugaverðri þekkingu með góðum og gagnlegum ráðum um tréverk og viðarvörn sem við vonum að verði þér hvatning til að vinna með tréverk á réttan, einfaldan og jafnvel á alveg nýjan hátt.
Góða skemmtun!
Wood Tex leiðsögn
Byrjaðu og endaðu vel
Þegar þarf að hirða um og vernda viðinn er fjöldi góðra ráðlegginga og flýtileiða sem geta auðveldað verkið og útkoman verður enn betri. Ef þú athugar til dæmis ástand tréverksins tvisvar á ári er það mjög góð aðferð. Fylgstu með hér og lærðu hvers vegna - og finndu fleiri gagnleg ráð og skýrar leiðbeiningar fyrir málningarvinnu utandyra.
Lestu meira
Þrjú hollráð áður en þú notar Wood Tex-viðarvörn

1. Vertu viss um að viðurinn sé tilbúinn
Besta útkomuna færðufðgar viðurinn er þurr og tekur vel við meðhöndlun. Frá maímánuði og fram eftir sumri þarftu um það bil þrjá góða og þurra daga til að bera viðarvörnina á.

2. Fjarlægðu ryk og óhreinindi
Hreinsaðu viðinn fyrst.
Ef óhreinindin fara ekki strax skaltu nota sterkara hreinsiefni.

3. Hugaðu að forvinnunni
Gömul og flagnandi málning eyðileggur allt. Pússaðu viðinn fyrst með sandpappír og fjarlægðu síðan allar málningarleifar.
Þrjár ástæður til að nota Svansmerkar vörur frá Flügger Wood Tex

1. Þú hugsar umumhverfið
Svansmerkið þýðir að varan er hvorki skaðleg umhverfinu, þér né viðnum.

2. Wood Tex stendur sig í öllum veðrum
Svansmerkið er trygging þín fyrir því að varan hafi verið ítarlega prófuð og uppfylli strangar kröfur.

3. Svansmerkið tryggir sjálfbærni
Með því að nota Svansmerktar vörur styður þú 12. heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni í neyslu og framleiðslu.
Þrjú mikilvæg verkfæri fyrir málningarverkefnið

1. Ætlarðu að mála utanhúss?
Þá ættirðu að nota grófan pensil fyrir utanhússmálningu. Slíkur pensill tekur í sig meiri málningu og málningin smýgur einnig betur inn í hvern krók og kima.

2. Ætlarðu að mála gluggana?
Þá ættir þú að nota Stiwex-listapensil. Þannig verður auðveldara að bera málninguna á af nákvæmni, og þú sleppur við að þvo alla glugga að verkinu loknu.

3. Ætlarðu að mála í hæð?
Þá er gott að nota stiga til að komast aðeins hærra upp. Þú getur líka notað framlengingarskaft
ef þú vilt mála frá jörðu.
Þrjú hollráð til að tryggja frábæra útkomu

1. Málaðu blautt í blautt
Láttu málninguna,,fljóta saman" svo yfirborðsflöturinn verði sléttari. Málaðu eitt borð í einu, þannig heldur þú góðri yfirsýn yfir framvinduna og getur tekið þér pásu af og til.

2. Málaðu ofan frá og niður
Með því að mála ofan frá og niður verða strokurnar jafnar og beinar og þú sleppur við „strokukindur".

3. Fylgdu útlínum viðarins
Gættu að byggingu viðarins og láttu strokurnar fylgja æðum og útlínum til að draga fram sérkenni viðarins. Þannig verður líka auðveldara að mála.
Þrjú hollráð um veður

1. Skoðaðu veðurspána
Fylgstu með veðurspánni, það þarf nefnilega að vera blíða í kortunum áður en þú hefst handa. Kjöraðstæður til málningarvinnu eru þegar það er skýjað, þurrt og þokkalega hlýtt.

2. Hafðu auga með hitastiginu
Þegar þú ætlar að viðarverja er æskilegt að hitastigið utanhúss sé á milli 10 og 25 stig. Wood Tex má nota við hitastig niður að 2 gráðum og allt upp að 25 gráðum.

3. Svalar nætur
Raki og kuldi yfir nótt getur lengt þurrktímann, en málningin þornar nú samt alltaf á endanum.
Þrjú algeng mistök við viðarvörn

1. Léleg forvinna
Útkoman verður miklu fallegri og endist mun lengur ef ekki er málað yfir gamalt ryk og óhreinindi.

2. Gömul málning er ekki fjarlægð
Gömul, laus málning kemur í veg fyrir að ný málning festist vel við viðinn. Ef góð viðloðun næst á milli Wood Tex og gamla viðarins tryggir það allt að 15 ára endingu.

3. Að nota röng áhöld
Það borgar sig sjaldnast að spara við kaup á áhöldum, því þannig verður verkið erfiðara en það þarf að vera. Val á pensli ræður miklu um lokaútkomuna. Stiwex-penslar fyrir útimálun eru sérhannaðir fyrir svona verk.
Þrjú hollráð frá fagmanninum

1. Hafðu filt undir fótunum
Það er auðvelt að færa filtmottu til, hún veitir skrikvörn og hlífir um leið undirlaginu fyrir slettum. Og svo er hægt að nota mottuna aftur og aftur - jafnt innanhúss sem utan.

2. Hafðu áhöldin á hreinu
Vandaður pensill, framlengingarskaft og stigi spara þér mikla aukavinnu.

3. Forðastu beint sólarljós
Það getur verið krefjandi að mála blautt í blautt í sólinni. Ef málningin þornar mjög hratt er hættara við að það sjáist skil milli umferða, en viðurinn fær auðvitað vörn þrátt fyrir það.
Þrjú hollráð fyrir vinnu í sólarljósi

1. Málaðu frá apríl fram í september
Á þessum árstíma er líklegast að hitta á góðveðursdaga og minni líkur á að rigningin setji strik í reikninginn. Og þá getur þú verið viss um að viðurinn sé nægilega þurr og taki vel við viðarvörninni.

2. Forðastu beint sólarljós
Wood Tex heldur alltaf litnum - líka í sólarljósi. Best er að mála blautt í blautt, en það getur verið erfitt þegar sólin skín beint á þig við vinnuna.
Mundu að drekka vel af vatni ☺️

3. Taktu daginn snemma
Þá hefur sólin náð að losa rakann úr viðnum.
Þrjú hreystimerki sem þarf að kanna

1. Fylgstu með rakanum í viðnum
Ef viðurinn er of rakur er hætt við að rakinn lokist inni. Það getur með tímanum leitt til þess að sveppagróður myndast. Til þess að það gerist þarf viðurinn reyndar að vera mjög rakur.

2. Skimaðu eftir sprungum í viðnum
Ef það sjást ljósir eða dökkir blettir í viðnum getur það verið merki um fúa eða svepp. Wood Tex verndarviðinn en getur því miður ekki lagfært skemmdir. Ef viðurinn er farinn að fúna þarf því að skipta um hann.

3. Hvenær er kominn tími á Wood Tex?
Þegar gamla málningin fer að flagna er kominn tími til að viðarverja aftur. Prófaðu að leggja bút af sterku límbandi á viðinn og rífa bútinn svo rösklega af. Ef það eru málningarleifar á límbandinu er kominn tími á næstu yfirferð.
Þrjár goðsagnir um Svansmerkta viðarvörn

1. „Svansmerkt viðarvörn endist verr“
Nei!
Svansmerkið byggir á ríkum kröfum um endingu, vernd og umhverfi. Ef varan er Svansmerkt ert þú að leggja þitt af mörkum við að vernda náttúruna.

2. „Útfjólubláir geislar (UV) sólarinnar eyðileggja Svansmerkð viðarvörn“
Nei!
Svansmerkt viðarvörn er betri og endist lengur.

3. „Svansmerkið og ESB-blómið eru sama merkingin“
Nei!
Kröfurnar sem Svansmerktar vörur þurfa að uppfylla eru mun strangari og við fylgjum ströngustu stöðlum.