Borðplötuolía
Hvað er borðplötuolía?
Borðplötuolía mettar viðinn og skilar hörðu yfirborði sem ver viðinn gegn óhreinindum og fitu. Viður sem hefur verið rétt meðhöndlaður með borðplötuolíu drekkur ekki í sig vatn og raka og springur því síður. Þetta er sér í lagi góður kostur á eldhúsborðum og plötum þar sem mikið er unnið með vatn og fitu. Þar sem olían myndar yfirborð sem kastar frá sér vatni og óhreinindum verða þrif og viðhald auðveldari.
Val á borðplötuolíu
Val á borðplötuolíu ræðst af því hvers konar við er verið að meðhöndla, hvernig viðhald plötunnar hefur verið og að sjálfsögðu væntingum um lokaútlit. Óháð því hvaða litur verður fyrir valinu, mun olían metta flötinn og verja hann gegn vatni og óhreinindum og þannig lengja líftíma viðarins.
Hefðbundin ólituð borðplötuolía mun gefa gljáa og draga fram byggingu viðarins. Þessa borplötuolíu má nota á allar viðartegundir. Þú getur líka valið borðplötuolíu með lit, og litavalið ræðst þá af því hvaða viðartegund verið er að meðhöndla.
Hversu oft þarf að meðhöndla með borðplötuolíu?
Ef þú ert ekki viss um hvort þú þurfir að bera á borðplötuna þína, þá getur þú komist að því með einföldum hætti. Allt sem þarf er að láta einn lítinn dropa af vatni á plötuna og fylgjast með viðbrögðum viðarins. Ef dropinn liggur á yfirborðinu þá er platan ennþá mettuð af olíu og ennþá vel varin. Ef dropinn hverfur inn í plötuna, þá bendir það til að platan sé móttækileg fyrir raka og það sé því þörf á meðhöndlun.
Svona meðhöndlar þú borðplötuolíu
Áður en hafist er handa við að olíubera er mikilvægt að huga að undirbúningsvinnu. Góður undirbúningur eykur líkur á að verkið gangi vel og lokaútkoma verði í samræmi við væntingar.
- Ef borðplatan hefur áður verið meðhöndluð með málningu eða lakki er fyrsta skref að slípa plötuna niður í beran við. Ef borðplatan hefur áður verið meðhöndluð með olíu, ætti að duga að þrífa hana vel með viðarhreinsiefni.
- Ef þú ætlar að olíubera slípaðan eða ómeðhöndlaðan við, skaltu byrja á að hreinsa hann með viðarhreinsiefni.
- Berðu borðplötuolíuna á með pensli í jöfnu lagi sem þekur allan flötinn. Reikna má með að þörf sé á að bera olíuna á í fleiri en einni umferð áður en hún nær að metta viðinn.
- Það getur verið gott ráð að nudda olíuna ofan í viðinn með tusku eða klút. Þannig nær hún betur að væta og að endingu að metta viðinn. Mælt er með a.m.k. 2-3 umferðum til að fá sem besta útkomu.
- Gott ráð er að þurrka yfir allan flötinn eftir að borið er á hann til að fjarlægja umframolíu sem viðurinn tekur ekki við. Umframolía sem fær að þorna ofan á plötunni myndar filmu sem getur flagnað og virkað mjúk.
- Athugið: Sjálfsíkveikja getur orðið í olíumettuðum klútum. Þá skal metta með vatni eða brenna að notkun lokinni.
Þetta þarftu að hafa við hendina þegar þú notar borðplötuolíu
- Viðarhreinsir
- Sandpappír
- Borðplötuolía
- Pensill
- Góða tusku eða örtrefjaklút