Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Útimálning fyrir stein

Er veðurkápan utan á húsinu farin að láta á sjá? Þá er orðið tímabært að huga að endurmálun. Gott viðhald á múrnum skiptir öllu máli og góð málningarfilma sinnir mikilvægu hlutverki í að verja múrinn gegn veðurálagi, gróðurmyndun og almennu sliti. Hjá Flügger finnur þú frábæra utanhússmálningu á stein, sem tryggir bæði hámarksvörn og endingu.
6 vörur
Flügger Facade Resist - Framhlíðar málning
Frá 3.590 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Flügger Facade Universal - Olíuþynnt málning
Frá 10.990 kr.
Er litanlegt
Flügger Facade Grunnur - Grunnmálning fyrir framhliðar
Frá 2.790 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Litapróf - Þekjandi
Frá 599 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Sýni 6 vörur af 6

Gefðu húsinu þínu nýtt útlit með utanhússmálningu frá Flügger

Múrinn utan á húsinu þínu er líklega einn mikilvægasti partur hússins. Til þess að halda honum snyrtilegum og tryggja að hann haldi veðri og vindum þá skiptir miklu máli að halda honum vel við með reglulegri endurmálun. Ytra byrði hússins er líka það fyrsta sem maður tekur eftir þegar maður sér húsið. Gott viðhald múrsins er mikilvægt fyrir endingu, útlit og heilbrigði hússins.

Þegar þú velur utanhússmálningu á stein þá skiptir miklu máli að velja tegund sem hentar aðstæðum. Hjá Flügger færðu fyrsta flokks utanhússmálningu sem hönnuð er með íslenskar aðstæður sem viðmið.

  • Hjá Flügger færðu hina klassísku akrýlmálningu, sem er algengust við málun á múr og stein utandyra. Akrýlmálning er frábær alhliða málning til að mála bæði á nýja og eldri fleti. Akrýlmálning hrindir líka frá sér vatni og óhreinindum og skilar öndunarvirkri veðurkápu. Flügger Facade Resist er akrýlmálning sem hönnuð er til notkunar við krefjandi aðstæður utanhúss. Áætluð ending málningarinnar er 15 ár, hún er fáanleg í fjölmörgum, fallegum litum og síðast en alls ekki síst þá þolir hún rigningu 30 mínútum eftir að málað er. Facade Resist hentar því einstaklega vel til notkunar við íslenskar aðstæður.