Útimálning fyrir stein
Val á utanhússmálningu
Útimálning er sérstaklega hönnuð til notkuna á ytra byrði húsa. Hún myndar kápu sem veitir vörn gegn veðrun og skapar þannig skilyrði sem tryggja hámarksendingu á ytra byrði hússins. Það er því mjög mikilvægt að velja rétta málningu til notkunar utanhúss.
Til eru nokkrar tegundir af utanhússmálningu fyrir stein, sem allar hafa mismunandi eiginleika. Val á útimálningu ræðst af tegund undirlagsinsins, umhverfissjónarmiðum og kröfum um útlit og endingu. Í dag notum við mest af umhverfismerktri akrýlmálningu á stein utanhúss. Aðrar tegundir eru olíumálning, sílikonmálning og silikatmálning.
Það er mikilvægt að velja málningu sem skilar öndunarvirkri filmu sem hleypir raka úr steypunni í gegnum sig. Þannig getur málningin lágmarkað hættu á rakaskemmdum og sprungumyndun í múrnum.
Að velja lit og gljástig utanhúss
Það er að ýmsu að hyggja þegar kemur að því að velja lit á utan á húsið. Hafðu nánasta umhverfi hússins og byggingastílinn í huga við litavalið. Yfirleitt kemur best út að velja matta málningu á stein utanhúss. Hægt er að fá málningu með hærri gljáa en í langflestum tilvikum velur fólk að nota sem lægstan gljáa.
Ef þú vilt klassískan hvítan lit utan á húsið þitt þá getur verið góð hugmynd að velja hvítan lit sem er með gráum eða gulum undirtón. Annars getur liturinn virkað bláleitur eða mjög bjartur og skær í dagsbirtu.
Litavalið er að sjálfsögðu persónulegt val hvers og eins og við litum þann lit sem þú vilt. Viljir þú sækja þér innblástur við litavalið þá bendum við á litakortin okkar sem eru aðgengileg á vefsíðunni og í öllum okkar verslunum. Það getur verið gott ráð að mála nokkrar litaprufur á húsið til þess að sjá hvernig þeir koma út í þeim aðstæðum sem þeir eiga að vera.
Hvenær er best að mála með útimálningu?
Áður en hafist er handa við að mála er mikilvægt að tryggja að undirlagið sé þurrt. Bestu aðstæður til útimálunar á Íslandi skapast yfirleitt síðla vors, yfir hásumar og fram á fyrri part hausts. Fylgstu með veðurspám og reyndu eftir fremsta megni að velja veðurglugga þar sem steinninn hefur fengið tíma til að þorna og útlit er fyrir að málningin muni fá tíma til að þorna að verki loknu.
Svona málar þú með útimálningu
Þegar þú ert búin/n að velja rétta tegund málningar í verkið, þá er réttur undirbúningur og undirvinna lykilatriði. Góð undirvinna er grunnurinn að góðri útkomu og endingu.
- Fjarlægja þarf allan lausan múr, útfellingar og flagnandi málningu með hreinsun áður en málað er. Hér er t.d. hægt að notast við sköfu, bursta eða spaða.
- Gróðurmyndun og mygluvöxt skal fjarlægja með gróðurhreinsi.
- Þvoið steininn með þar til gerðu hreinsiefni, t.d. Facade Clean, og skolið svo vel með vatni.
- Skemmdir, holur og sprungur í múrnum skal gera við með sementsbundnu múrviðgerðarefni.
- Berið því næst grunn á flötinn. Það er sérstaklega mikilvægt þegar verið er að mála nýpússaða fleti, eða fleti sem eru duftsmitandi eða ídrægir. Það getur verið gott , og fer eftir aðstæðum hverju sinni, að grunna fleiri en eina umferð til að tryggja hámarksendingu.
- Byrjaðu á að mála með pensli í hornum, meðfram köntum, gluggum og hurðum. Því næst skaltu rúlla stærri fletina með góðri rúllu á skafti. Rúllaðu í löngum strokum og forðastu að stoppa á miðjum fleti, þar sem það getur orsakað lita- eða rúlluskil.
Þetta þarft þú til að mála úti
- Bursta, sköfu eða spaða
- Gróðurhreinsi
- Facade Clean hreinsiefni
- Sementsbundið múrviðgerðarefni
- Grunn
- Útimálningu fyrir stein
- Pensil
- Málningarrúllu
- Framlengingarskaft