Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Járnmálning úti

Járn og málma þarf, líkt og aðra fleti heimilisins, að fríska upp á með endurmálun. Það getur t.d. þurft að mála ofna eða húsgögn innanhúss og handrið, þök eða garðhúsgögn utanhúss. Endurmálun á járni frískar upp á útlitið en er ekki síður mikilvæg til að viðhalda og byggja upp slitfilmu og verja gegn vindi og veðrun. Þannig má lengja líftíma járns og málma með því að endurmála og huga vel að viðhaldi málningarinnar.
3 vörur
Málmgrunnur – Metal Pro Multiprimer Flügger
Frá 2.640 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Málmplötumálning – Vatnsbundin Metal Pro Flügger
Frá 4.290 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Málning fyrir málma, mött - Metal Pro 5 Flügger
Frá 4.290 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Sýni 3 vörur af 3

Hvað er málning fyrir járn og málma?

Málning fyrir járn og málma gefur einstaklega slitsterkt og hart yfirborð. Flestar tegundir má því nota bæði innanhúss og utanhúss. Málningin myndar mjög veðurþolna filmu sem ver flötinn fyrir vatnsskemmdum.

Að velja málningu fyrir járn og málma

Til eru mismunandi tegundir af málningu fyrir járn og málma sem henta mismunandi eftir aðstæðum hverju sinni. Þegar þú velur málningu skiptir mestu máli hvers konar málma stendu til að mála.

Að velja lit og gljáa

Málninguna er hægt að lita í ýmsum litum. Þú getur sótt þér hugmyndir og innblástur í litakortunum okkar eða í næstu verslun Flügger. Ef þú ert í vafa með litavalið þá mælum við með að byrja á að taka litaprufu.

Hvenær þarf að endurmála járn?

Meða tímanum getur málning misst gljáa og farið að mattast. Það sama á við um málningu á járn og málma. Að auki geta óhreinindi, skemmdir og slit valdið staðbundinni flögnun á filmunni. Þess vegna er mikilvægt að huga að viðhaldi og endurmálun á þeim flötum. Með því að gera það þá má hægja á ryðmyndun, draga úr þörf á skemmdum og viðgerðum vegna ryðs og lengja líftíma járnsins.

Svona málar þú með járnmálningu

Undirbúningsvinna er lykilatriði og hefur mikið að segja varðandi endingu og útlit.

  • Byrjaðu á að þrífa flötinn vel með þar til gerðu hreinsiefni. Hreinsiefni fyrir járn og málma vinnur á almennum óhreinindum, fitu, ryði og kalki. Að lokinni hreinsun skal skola flötinn vel með hreinu vatni.
  • Notaður spaða, sköfu eða vírbursta til að fjarlægja gamla, lausa málningu. Ef málningin situr föst á ákveðnum svæðum þá má jafna yfirborðið með sandpappír. Mundu að hreinsa burt allt slípryk áður en málað er.
  • Verðu þau svæði í umhverfinu sem ekki á að mála, til að koma í veg fyrir að þú þurfir að þrífa málningarslettur að verki loknu.
  • Berðu grunn á flötinn til að tryggja að málningin fái góða viðloðun. Grunnurinn eykur ekki bara viðloðun, hann jafnar líka yfirborðið og eykur líkurnar á einsleitri áferð eftir lokaumferð. Notaðu grunn sem hannaður er á járn til að tryggja að undirlagið fái líka vörn gegn ryðmyndun. Þegar verið er að mála járn eða málm í fyrsta skipti getur borgað sig að tvígrunna áður en málað er.
  • Áður en þú byrjar að mála með járnmálningunni þá skaltu gæta þess að grunnurinn sé alveg þurr. Málið gjarnan tvær umferðir og gefið málningunni tíma til að þorna á milli umferða. Ef um er að ræða áður ómálaðan flöt þá er gott að mála 2-3 umferðir með málningunni.
  • Ef þú hefur notað málningarlímband þá er mælt með að fjarlægja það áður en lokaumferðin þornar. Þannig má koma í veg fyrir að límbandið rífi með sér málninguna þegar það er fjarlægt.

Þetta þarftu að hafa við hendina þegar þú málar járn og málma

  • Metal Pro hreinsiefni fyrir járn og málma
  • Spaða
  • Sköfu
  • Vírbursta
  • Sandpappír
  • Grunn
  • Málningu fyrir járn og málma
  • Pensil
  • Málningarrúllu