Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Grunnur / Primer

Nauðsynlegt er að grunna áður en þú málar nýtt eða áður ómeðhöndlað undirlag. Að öðrum kosti máttu búast við því að flöturinn drekki í sig mikla málningu sem veldur því að þú munt þurfa að nota umtalsvert meira magn af málningu. Rétt notkun grunns getur því ekki bara hámarkað viðloðun og minnkað líkur á flögnun, heldur einnig minnkað það magn af málningu sem þörf er á að nota.
3 vörur
Flügger Facade Grunnur - Grunnmálning fyrir framhliðar
Frá 2.790 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Málmgrunnur – Metal Pro Multiprimer Flügger
Frá 2.640 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Sýni 3 vörur af 3

Hvað þarf að grunna?

Með því að huga vel að undirbúningi og grunnvinnu má auka líkurnar á því að steinveggurinn eða járnhandriðið þitt fái jafna og fallega áferð að lokinni málun. Til að grunnvinnan sé með besta móti er mikilvægt að velja réttan grunn miðað við það undirlag sem verið er að vinna í. Hjá Flügger getur þú fengið útigrunn fyrir timbur, múr, járn o.s.frv. Þegar þú velur að nota grunn og málningu úr sama málningarkerfi frá Flügger þá getur þú verið viss um að þú náir fram hámarksendingu og bestu mögulega útkomu. Efnasamsetning grunnana getur nefnilega verið mismunandi milli framleiðenda. Grunnarnir frá Flügger tryggja ávallt hámarks viðloðun og vætingu og skila vel mettuðum fleti tilbúnum til málunar.

Facade múrgrunnur

Þegar til stendur að mála múr eða steypta fleti utanhúss er góður grunnur forsenda þess að útkoma og ending verði í samræmi við væntingar. Sérstaklega ef um er að ræða áður ómeðhöndlað undirlag. Með grunni og yfirmálningu frá Flügger mun ytra byrði hússins fá snyrtilegt og endingargott yfirborð.

Málmgrunnur

Þegar mála þarf járn og málmfleti, eins og t.d. járnhandrið er viðloðun oft vandamál. Eins er hætta á að ryðblettir komi í gegnum málninguna. Með því að grunna fyrir málun með réttum grunni tryggir þú mun betri viðloðun og dregur úr líkum á ryðmyndun. Í sumum tilvikum getur verið gott að slípa flötinn varlega með sandpappír áður en hann er grunnaður. Þannig má ná enn betri viðloðun. Málmhlutirnir þínir munu skína og endast árum saman með grunni og yfirmálningu frá Flügger.

Góð vinnubrögð.