Vörslupappi
Það borgar sig að verja með vörslupappa
Það er góð fjárfesting að kaupa nóg af vörslupappa og verja gólf og húsgögn áður en hafist er handa við að mála. Ef þú ætlar að spara þér tíma og vinnu við það þá geturu lent í því að enda með málningarslettur á gólfum og málningarlykt í húsgögnunum. Vörslupappinn er mjög hentug og ódýr lausn til að koma í veg fyrir slík vandræði að verki loknu.
Vörslupappi er mjög góð lausn til að verja parket og viðargólf. Það er góð hugmynd að líma pappann vel niður með málningarlímbandi svo hann fari ekki til ferðar meðan á verki stendur.
Við mælum líka með að verja borð, stóla og önnur húsgögn, þar sem það getur verið erfitt að ná málningarslettum úr eftir á. Við mælum einnig með að fjarlægja gardínur, gólfmottur o.þ.h. áður en hafist er handa. Það kann að hljóma eins og sjálfsagður hlutur en ótrúlegustu hlutir geta gleymst þegar maður er kominn í gírinn.
Gott verklag.