Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Málningafötur

Í öllum málningarverkefnum er mikilvægt að vera með góð verkfæri. Hvort sem þú ert í stórum eða smáum verkum, þá færðu verkfærin hjá Flügger. Ef þú ert í stóru málningarverkefni, eða að mála stóra fleti eins og veggi, loft eða gólf er mjög gott að vera með málningarfötu til að rúlla upp úr. Að nota málningarfötu auðveldar vinnuna og flýtir fyrir og er í raun alveg jafn mikilvægt og að velja rétta rúllu.
5 vörur
Málaraspannu Lok - Genbrugið plast
Frá 919 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Málaraspannu Innlegg 7080 - Genbrugsplast
Frá 319 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Plastpoki fyrir Spand - 50 stk.
Frá 1.390 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Pensillahaldari með 2 Seglum
Frá 369 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Sýni 5 vörur af 5

Hvers vegna að nota málningarfötu?

Málningarfata hefur það fram yfir málningarbakka að hún tekur mun meiri málningu. Þú getur því sparað tíma með því að þurfa ekki sífellt að vera að fylla á bakkann. Þú nýtir því tímann betur í að rúlla og þannig má segja að fatan hjálpi til við að hámarka afköst.

Málningarfata er oftast ferköntuð, og líkt og málningarbakki, er hún með hönnuð með riffluðum hliðum að innan sem hugsaðar eru til þess að jafna efnisdreifinguna í rúllunni. Með því að rúlla málningarrúllunni eftir rifflunum kastar þú líka umframefni úr rúllunni aftur ofan í bakkann og dregur þannig úr líkum á að málningin ýrist úr rúllunni þegar þú rúllar veggina eða loftin. Rétt magn af málningu og jöfn dreifing í rúllunni auðveldar þér að fá jafna áferð og efnisdreifingu á þann flöt sem þú ert að mála.

Málningarfata eða málningarbakki?

Umfang og stærð verkefnisins stýrir því hvort hentar betur að nota fötu eða bakka. Ef verkefnið er lítið þá getur hentað betur að nota bakka en í stærri verkefnum er gott að velja fötu. Fatan tekur meira magn af málningu og þú þarft því ekki að fylla eins oft á hana eins og bakkann.

Engin þrif ef þú notar poka

Þegar þú ert búinn að mála þá taka við þrif á verkfærunum. Það á við um pensla, rúllur, bakka og fötur. En þú getur minnkað vinnuna við þrifin með því að nota þar til gerða poka í fötuna. Þá hellir þú málningunni í pokann ofan í fötunni og rúllar svo upp úr pokanum. Rúllan virkar eins og venjulega og rifflaðar hliðarnar innan í fötunni líka þrátt fyrir að pokinn sé í. Þegar þú hefur svo lokið við að mála þá fjarlægir þú einfaldlega pokann og fatan er tilbúin í næsta verkefni. Pokinn nýtist einnig til að koma í veg fyrir að málningin og verkfærin þorni á milli umferða.