Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Málningabakkar

Málningarbakki gerir málningarvinnuna auðveldari. Hann auðveldar þér að dreifa málningunni jafnt í rúlluna og minnkar líkur á að málningin sullist sem skilar sér í minni þrifum að verki loknu. Góður málningarbakki er þannig mjög einfalt verkfæri sem auðveldar alla málningarvinnu.
6 vörur
Rúllusett Velour fine
Frá 1.090 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Málararúllusett Microlon Rough - Flügger
Frá 1.440 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Málararúllu Sett, 5 cm - Stiwex
Frá 659 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Plastpoki fyrir Spand - 50 stk.
Frá 1.390 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Málarabakki - Stiwex
Frá 339 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Sýni 6 vörur af 6

Hvers vegna áttu að nota málningarbakka?

Málningarbakki gerir málningarvinnuna auðveldari. Þú hellir málningunni í bakkann og dýfir svo rúllunni ofan í til að sækja efni. Í bakkanum er rifflaður flötur sem þú svo notar til að jafna efnisdreifinguna í rúllunni. Með því að vera með rétt magn af málningu í rúllunni hverju, má draga verulega úr hættu á að málningin leki úr rúllunni með tilheyrandi sóðaskap og þrifum.

Að velja réttan málningarbakka

Málningarbakkarnir fást í mörgum gerðum stærðum og gerðum. Það sem mestu máli skiptir þegar þú velur bakka er að hann sé í réttri breidd, svo að rúllan sem þú ert að nota passi ofan í hann. Ef rúllan er breiðari en bakkinn þá passar hún ekki rétt ofan í hann og bakkinn nýtist því ekki sem skyldi.

Það skiptir ekki bara máli að rúllan og bakkinn séu í sömu breidd, heldur er mikilvægt að reyna að velja þann bakka sem hentar þínu verkefni hverju sinni.

Í minni verkefnum, t.d. við lökkun innihurða, innréttinga o.s.frv. er gott að velja litla rúllu og lítinn bakka. Ef þú ert að rúlla stóra fleti eins og veggi, loft eða gólf þá getur verið gott að velja dýpri málningarfötu sem tekur við meira magni af málningu. Þá þarftu ekki að fylla eins oft á málninguna og getur einbeitt þér að því að rúlla flötinn. Málningarfatan er líka með riffluðum hliðum sem nýtast vel til að jafna efnisdreifinguna í rúllunni.

Það er líka hægt að fá bakka í setti með rúllu í réttri stærð. Settin eru fáanleg í mismunandi stærðum og gerðum, allt eftir því hvað hentar hverju sinni.

Sparaðu þér þrifin með því að nota poka í fötuna og utan um rúlluna.

Þrif á rúllum, bökkum og penslum er fylgifiskur allrar málningarvinnu. Með því að nota poka má spara sér töluverða vinnu við þrifin. Ef þú setur þar til gerðan plastpoka ofan í málningarfötuna eða bakkann og hellir svo málningunni ofan í pokann þá fer engin málning í fötuna sjálfa og þú sleppur við að þrífa hana eftir á. Þú lokar svo pokanum að verki loknu og fargar honum skv. reglum, og málningarbakkinn er klár í næsta verkefni.

Með því að nota poka má líka auðvelda vinnuna og flýta fyrir ef verið er að mála í nokkrum mismunandi litum. Þá er einfaldlega hægt að skipta um poka í bakkanum.

Pokarnir koma líka að góðum notum ef málningarverkefnið tekur nokkra daga. Þá getur þú pakkað penslum og rúllum í pokana til að koma í veg fyrir að verkfærin þorni á milli umferða.

Þrif á málningarbakka

Ef þú hefur ekki notast við poka, þá skaltu þrífa bakkann eða fötuna strax að verki loknu. Hreinsaðu alla málninguna af til að bakkinn sé hreinn og klár næst þegar þú þarft að nota hann. Þrifin eru mismunandi eftir því hvernig málningu þú varst að nota. Ef þú varst að vinna með vatnsþynnanlega málningu er hægt að þrífa bakkann og verkfærin með vatni og sápu. Ef þú varst að nota olíumálningu eru þrifin aðeins erfiðari. Þá virkar vel að nota penslahreinsi við þrifin. Ef þú nærð ekki allri málningunni úr fötunni þá er hægt að leyfa henni að þorna alveg. Allajafna mun málningin sem þú hellir næst í fötuna ekki leysa þá gömlu upp.