Kíttissprauta
Hvað er kíttisbyssa?
Kíttisbyssa er ómissandi verkfæri þegar kemur að kíttun í kverkum, meðfram listum, gluggum, körmum o.þ.h. Kíttistúpan er sett í byssuna og með henni þrýstir þú efninu auðveldlega úr túpunni með jöfnum þrýsting.
Hvernig virkar kíttisbyssa?
Þegar búið er að "hlaða" kíttisbyssuna með fullri kíttistúpu má með auðveldum og fljótlegum hætti þrýsta kíttinu úr túpunni með því að klemma saman handfangið á byssunni. Kíttið dælist út um spíssinn á túpunni með aðstoð byssunnar. Munið að skera gat á spíssinn á túpunni áður en hafist er handa. Mælt er með því að skáskera spíssinn og hafa gatið minna en breiddina á fúgunni sem á að kítta. Þannig má hafa betri stjórn á efnisflæðinu. Þegar búið er að leggja kíttið er gott að draga úr því og jafna með því að strjúka yfir það með spaða eða sambærilegu verkfæri.
Kostir við að nota kíttisbyssu
Með því að nota kíttisbyssu má með auðveldum hætti tryggja jafnt efnisflæði á kíttinu og þannig jafna og fallega áferð. Að sama skapi er auðvelt að loka fyrir efnisflæðið með því að sleppa gikknum og losa þannig þrýstinginn á túpunni.
Kíttisbyssa í ýmis verkefni
Kíttisbyssuna má nota til ýmissa verkefna. Notkunareiginleikarnir gera hana ómissandi þegar þarf að kítta. Með því að nota góða kíttisbyssu sparar þú tíma og hámarkar líkur á að ná fram jafnri efnisdrefingu og fallegri áferð.
Kíttisbyssa nýtist í:
- Sprunguviðgerðir og viðgerðir á minni skemmdum
- Kverkar og samskeyti í hornum
- Samskeyti milli veggja og lista
- Samskeyti við borðplötur
- Samskeyti sem skal fela
Að velja kíttisbyssu
Þegar þú velur kíttisbyssu skiptir mestu máli að velja gæðaverkfæri sem endist í lengri tíma. Það er sérstaklega mikið atriði ef þú sérð fram á mikla kíttisvinnu. Það er góður kostur að byssan sé með þægilegt handfang með góðu gripi til að auðvelda þér vinnuna.