Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Málningarlímband

Það borgar sig að huga vel að því að verja fleti sem ekki má slettast á, áður en hafist er handa við að mála. Það bæði auðveldar þrif að verki loknu og kemur í veg fyrir að málningarslettur setjist á staði sem þú vilt ekki mála. Málningarlímband kemur hér að góðum notum og það má segja að það sé ómissandi hluti af allri málningarvinnu. Málningarlímband auðveldar málun meðfram kverkum, listum og körmum og kemur að góðum notum þegar aðeins á að mála hluta af vegg eða t.d. skilja eftir línu efst á vegg.
7 vörur
-25%
Málningarlímband - Flügger
Frá 892 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 1.190 kr./stk.
-25%
Gull málningarlímband - Flügger
Frá 1.605 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 2.140 kr./stk.
-25%
UV-málningarlímband - Flügger
Frá 1.530 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 2.040 kr./stk.
-25%
UV-málningarlímband Premium - Flügger
Frá 2.242 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 2.990 kr./stk.
-25%
Yfirbreiðsluplast með UV málningarlímbandi
Frá 2.092 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Fyrir 2.790 kr./stk.
Sýni 7 vörur af 7

Hvað er málningarlímband?

Málningarlímband er sérstök tegund límbands sem hentar vel til að verja fleti sem ekki á að að mála. Málningarlímband er fáanlegt í ýmsum gerðum, breiddum og litum. Það ætti því að vera auðvelt að finna rétta límbandið sem hentar þínu verkefni. Þar að auki er hægt að fá málningarlímband með áföstu hlífðarplasti, sem hentar vel þegar stúka þarf af heilu svæðin eða verja innréttingar sem dæmi.

Svona er hægt að nota málningarlímband

Málningarlímband hentar vel til að verja þau svæði sem ekki á að mála. Málningarlímband kemur t.d. að góðum notum í samskeytum milli veggja og lofts, yfir gólflista og skrautlista, hurðakarma og kringum glugga. Gott málningarlímband gerir málningarvinnuna auðveldari og fljótlegri og tryggir það líka að þú færð hreinar, flottar línur í málningarverkinu þínu. Málningarlímband hentar líka mjög vel ef þú vilt mála hluta af vegg, það auðveldar þér að ná fallegum línum þegar veggnum er skipt upp.

Að fjarlægja málningarlímband

Þegar þú ert búin/n að mála er mikilvægt að fjarlægja málningarlímband sem málað hefur verið yfir, áður en lokaumferð af málningu nær að þorna að fullu. Ef málningin fær að þorna á límbandinu þá getur verið hætta á að límbandið rífi málninguna með sér af þegar það er fjarlægt. Ef þú þarft að mála fleiri en eina umferð af málningu meðfram málningarlímbandinu þá er óhætt að láta límbandið standa þar til lokið hefur verið við síðustu umferð.