Yfirbreiðsla
Tegundir yfirbreiðslu
Það eru til nokkrar mismunandi gerðir af yfirbreiðslu, sem hver um sig hefur sína eiginleika og kosti. Mismunandi tegundir af pappír, filtmottum og hlífðarplasti henta vel þegar hylja þarf t.d. húsgögn og gólf.
Valið stendur milli mismunandi tegunda:
- Filtmotta
- Hlífðarpappír
- Hlífðarplast
- Málningarlímband
Filtmotta
Filtmottan hefur þá sérstöðu að hún samanstendur af plasti í grunnninn og mjúku filtyfirborði. Það gerir hana sérstaklega hentuga til notkunar á viðargólfum eða öðrum gólfum sem þú vilt veita aukna vernd. Mjúka lagið veitir góða vörn gegn rispum og skemmdum frá málningartröppunni. Að auki kemur plastundirlagið í veg fyrir að málning sem hellist niður smjúgi í gegn og skilji eftir ummerki á gólfinu.
Hlífðarpappír
Hlífðarpappír hentar vel til að hlífa gólfum við málningarvinnu. Hann er auðveldur í notkun og fljótlegt er að rúlla honum út þegar þekja þarf stærri fleti. Auðvelt er að sníða hann til í þá stærð sem hentar, og þannig má leggja hann alveg upp að gólflistum sem dæmi. Hlífðarpappír er fáanlegur í mismunandi þykktum.
Hlífðarplast
Hlífðarplast er þynnra og léttara en pappi og filtmotta og hentar því betur til að breiða yfir húsgögn og hlífa gluggum, hurðum og innréttingum. Auðvelt er að hengja plastið upp með límbandi og verja þannig hurðir og glugga eða nota það til að loka milli rýma og afmarka vinnurými frá rykfríu svæði.
Málningarlímband
Málningarlímband er nauðsynlegt að hafa við höndina þegar verið er að mála. Hentar vel til að verja fleti sem ekki á að mála, t.d. gólflista ljósarofa, innréttingar o.þ.h. Á sama tíma tryggir þú fallegar, hreinar línur með því að nota málningarlímband.
















