Svona velur þú rétta litinn fyrir tréverk utanhúss
Ert þú að leita að fullkomna litnum fyrir húsið eða sumarhúsið? Við höfum tekið saman nokkur góð ráð sem gæti verið gagnlegt að hafa í huga áður en þú byrjar.
Byggingarstíll og umhverfi
Með því að taka mið af arkitektúrnum sjáum við til dæmis að þegar á að mála hús í fúnkís-stíl, sem einkennist af beinum, einföldum línum, er fallegt að nota mattan, svartan lit, hvítan lit eða gráan lit, svo sem U-738 Dark Ebony. Ef húsið er í hefðbundnari stíl fer kannski betur að nota ljósbrúna litatóna, svo sem U-766 Sandstorm eða U-771 Grey Clay. Eða væri þitt hús enn fallegra í litum eins og U-744 Empire Yellow, U-530 Tiramisu eða U-779 Night Blue?
Ekki hika við að biðja starfsmann í Flügger-versluninni þinni um aðstoð við að finna réttu litina á þiljurnar, listana, grunnveggina, útidyrnar og allt hitt, til að skapa fallegt og heildstætt útlit.
Umhverfi
Nánasta umhverfi hússins getur haft mikil áhrif á það hvernig við skynjum liti. Þetta er sérstaklega mikilvægt ef þú býrð á mjög grónu svæði, t.d. með miklum trjágróðri, og/eða svæði þar sem er mikil rykmyndun og mengun frá umferð. Þá gæti verið skynsamlegt að forðast mjög ljósa liti til að heildaryfirbragðið haldist fallegt lengur.
Þú ættir líka að fara í stutta skoðunarferð í kringum húsið og taka sérstaklega eftir því hvaða útlitsþáttum þú vilt halda óbreyttum. Stendur húsið þitt til dæmis þétt upp við næsta hús? Þá gæti verið sniðugt að taka mið af litavalinu á því húsi til að skapa samræmi og fallegan heildarsvip.
Skynjun lita
Litalausnir og litaprufur
Við hjá Flügger mælum alltaf með því að gera litaprufur á nokkuð stórum fleti. Þetta á bæði við innanhúss og að utanverðu. Skynjun okkar á litum ræðst að miklu leyti af bæði nánasta umhverfi og birtu. Þess vegna er gott að fylgjast með því hvernig liturinn breytist á mismunandi tímum sólarhringsins og eftir umhverfisaðstæðum. Er liturinn jafn fallegur á drungalegum rigningardegi og hann er á sólskinsmorgni? Ef sú er raunin er þetta líklega rétti liturinn fyrir þig og þitt heimili.
Síðast en ekki síst er auðvelt að missa yfirsýnina, því það eru svo ótrúlega margir litir í boði. Og margir eiga erfitt með að sjá fyrir sér hvernig lítil litaprufa myndi koma út á heilum húsvegg. Ef þú kemur á heimili sem er málað í lit sem þér líkar við getur verið sniðugt að taka mynd til að fá innblástur. Hafðu líka auga með litunum á listum og grunnveggjum og taktu eftir umhverfi hússins. Þetta getur verið mjög gagnlegt þegar í málningarverslunina er komið og taka þarf endanlega ákvörðun um litavalið.
Þú finnur allt fyrir viðarverkið hjá Flügger
Þegar þú ætlar að mála bílskúrinn eða bílskýlið þarftu hágæða viðarmálningu sem tryggir að viðurinn endist í mörg ár. Með viðarvörn frá Flügger færðu allt að 15 ára vernd með einstaka slitstyrk gegn sól, rigningu og frosti. Gerðu sjálfum þér greiða – skoðaðu úrvalið okkar og settu viðarmálningu frá Flügger í körfuna.
Tengt efni

Svona velur þú rétta litinn fyrir húsið þitt
Við höfum tekið saman nokkrar hugmyndir að litavali fyrir þetta mikilvæga verkefni.

Litir fyrir útidyrnar þínar
Finndu litainblástur fyrir útidyrnar þínar og gerðu innganginn að þínu andliti.

Hvaða viðarvörn ættir þú að velja?
Veldu rétta viðarvörn fyrir þitt heimili með Flügger Wood Tex línunni.