Svona velur þú rétta litinn fyrir húsið þitt
Ættir þú að velja nýja liti fyrir húsið þitt? Hér færðu litainnblástur með fjórum mismunandi litasamsetningum.
Flestir vilja fallegt, vel viðhaldið hús sem býður alla velkomna til sín og er aðlaðandi.
Ertu meira fyrir hvítt eða viltu vera í lit? Fáðu innblástur með fjórum mismunandi litasamsetningum.
Eftir því sem fleiri þættir í kringum húsið eru samræmdir með litavali, því fullkomnara virðist það. Spáðu líka í litavalinu fyrir skyggnið, sökklana, garðhúsgögnin og fleira sem er í umhverfi hússins. Eftir því sem litavalið er samræmdara, þeim mun fallegri heild skapast.
Mundu einnig að í boði eru mismunandi tegundir af málningu, þær eru annaðhvort fyrir steypt hús, viðarklædd eða bárujárnsklædd hús.
Ef þú vilt velja hvítan á húsið þitt þá er flott að undirstrika karakter hússins með bláleitum lit fyrir glugga, hurðir og garðhúsgögnin. Hér er sökkullinn málaður í dökkgráum lit sem undirstrikar enn frekar karakter þessa fallega húss.
Fasade og þakskegg: U-520 Fashion White
Glugga, hurð og garðhúsgögnin: U-569 Blue Beach
Sökkull: U-573 Classic Grey
Veljir þú ljósan lit á húsið er hægt að velja aðeins dekkri lit á þakskyggnið. Hér er ljósgrár á húsinu og dekkri grár á þakskegginu sem rammar húsið fallega inn. Dökkblár er síðan á gluggum og hurð sem undirstrikar karakter hússins á fallegan máta.
Fasade: U-502 Dune
Glugga og hurð: U-576 Navy Blue
Þakskegg og planki: U-564 Clear Grey
Hér er valinn dökkur litur á húsið en ljós á hurðir, glugga og þakskyggni. Húsið í þessum litum virkar sterkbyggt og afar karaktermikið. Hjúpur trausts í heild sinni sem býður íbúa og gesti velkomna.
Fasade: U-579 Deep Sea
Glugga og hurð: U-540 Powder Snow
Þakskegg og grindverk: U-541 Rain Grey
Hér er dekkri litur valinn á húsið sjálf en hvítur settur á glugga, hurðir og garðhúsgögnin. Mjúkir litir en karakter einkenni hússins færð fram með hvíta litnum. Sökkullinn er svo í dökkgráum lit. Skemmtileg litasamsetning sem gefur húsinu fallegan blæ og leyfir einkennum hússins að taka sitt pláss í heildarmyndinni.
Fasade: U-571 Titanium
Glugga, hurð og garðhúsgögnin: U-580 Offwhite
Sökkull: U-574 Philosopher
Tengt efni

Litir fyrir útidyrnar þínar
Finndu litainblástur fyrir útidyrnar þínar og gerðu innganginn að þínu andliti.

Hvaða viðarvörn ættir þú að velja?
Veldu rétta viðarvörn fyrir þitt heimili með Flügger Wood Tex línunni.

Svona velur þú rétta litinn fyrir tréverk utanhúss
Sjáðu ráð okkar um litaval fyrir tréverk utanhúss – byggt á stíl og umhverfi.