Litir fyrir útidyrnar þínar
Hvað ætti fólk að upplifa við útidyrnar þínar? Hvað myndir þú vilja sjá þegar þú kæmir heim? Það má segja að útidyrnar séu andlit hússins. Að minnsta kosti það fyrsta sem gestir þínir og þú hittir áður en þú ferð inn. Hér getur þú séð tillögur okkar að útilitum og hurðarlitum sem fara saman.
Hér getur þú séð tillögur okkar að útilitum og hurðarlitum sem fara saman.
Vert að íhuga áður en þú hefst handa
Hér eru nokkur ráð um hvað þú gætir viljað hugsa út í áður en þú hendir þér í að mála hurðina.
- Hvaða liti hefur hurðin haft áður?
- Hvernig var hurðin upphaflega á litinn?
- Ef hurðin er ekki í upprunalegum lit, ætti litavalið ætti að undirstrika muninn á nýju og eldra litavali?
- Hvaða litir voru algengir þegar húsið var byggt?
- Hvaða litir og málning henta arkitektúr og byggingarefnum hússins?
- Hvernig eru gluggarnir, húsið og þakið á litinn? Mundu að hurðin ætti að vera dekkri en gluggarnir.
Kíktu í næstu verslun og fáðu ráðgjöf fyrir útiverkið þitt svo þú getur verið viss um að velja rétta vöru fyrir þig.
Tengt efni

Svona velur þú rétta litinn fyrir húsið þitt
Við höfum tekið saman nokkrar hugmyndir að litavali fyrir þetta mikilvæga verkefni.

Hvaða viðarvörn ættir þú að velja?
Veldu rétta viðarvörn fyrir þitt heimili með Flügger Wood Tex línunni.

Svona velur þú rétta litinn fyrir tréverk utanhúss
Sjáðu ráð okkar um litaval fyrir tréverk utanhúss – byggt á stíl og umhverfi.