Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Heima með Þóru Birnu

Velkomin(n) á heimili Þóru Birnu. Þóra Birna (@thorabirna) og eiginmaðurinn Níels byggðu draumahúsið sitt þegar fjölskyldan fór að stækka. Níels er málarameistari og ákvað að nota vörur frá Flügger fyrir allt heimilið, enda veit hann að þar er gengið að gæðum og endingu vísum. Þóra Birna hefur mikinn áhuga á innanhússhönnun og í sameiningu hafa þau hjónin búið sér gullfallegt heimili á Höfn í Hornafirði.

 

Litir: KC14 i Lava/5376 Global Grey

Veggir nýja heimilisins eru sannkallað listaverk. Hjónin völdu litaða spartlið KC14 í litnum Lava fyrir stofuna og eldhúsið. Aðrir fletir á heimilinu voru málaðir með mattri áferð í litnum 5376 Global Grey og það setur nútímalegan og fallegan svip á húsið. Stíllinn hjá Þóru Birnu einkennist af svörtum innréttingum og húsgögnum með fallegum skreytingalausnum. Brúni leðursófinn er fallegur miðpunktur sem tengir hönnunarhrifin saman og fer sérlega vel við fallegu litbrigðin í KC14.

 

Litur: 5376 Global Grey