Litaprufur
Loft- og veggjamálning
Gólf
Viðarumhirða
Viðarvörn
Járn
Grunnur
Skrautspartl
Öryggi
Austrið á Norðurlöndunum
Krista Elvheim er litaglaður og skapandi innanhúss- og blómahönnuður sem býr í Osló. Hún hefur farið margar ferðir til Marokkó og sótt þangað innblástur og fyllt „litabrunninn“ sinn af gullfallegum, brenndum litatónum. Nú hefur hún gerbreytt heimilinu með spartlmálningunni KC14 og Dekso 1 Ultramatt og litavali sem er innblásið af austrænum töfrum.

KC14 - Warm Terracotta

KC14 - Warm Terracotta

Hún kaus að nota litaða spartlið KC14 í Mustard, Warm Terracotta og Burgundy og finnst áferð vörunnar skila henni alveg glænýrri og skemmtilegri áferð miðað við venjulega málaða fleti.
„Þegar við veljum liti á heimilið þarf alltaf að nota hjartað en ekki höfuðið,“ segir hún. Kaldir fjólubláir og lavenderbláir tónar skapa dásamlegar andstæður við bæði KC14 Mustard í stofunni og KC14 Warm Terracotta í eldhúsinu.

KC14 - Mustard

KC14 - Burgundy

KC14 - Mustard
Fyrir loftin í stofunni og eldhúsinu skannaði hún litaprufur og fann samsvarandi litakóða til að skapa einstakan og heildrænan svip fyrir alla íbúðina. Loftin í íbúðinni eru máluð með Dekso 1 Ultramatt til að töfra fram matta og endingargóða áferð.

Dekso 1 S 4040-R10B

Dekso 1 S 1015-R60B

Dekso 1 S 3030-Y40R

Dekso 1 S 1015-R60B




