KABRIC spartlmálning
KABRIC, litaða spartlið frá DETALE CPH er hin fullkomna lausn ef þig dreymir um náttúrulega, matta, rustic stemningu á veggina eða húsgögnin. KABRIC er svansvottað efni sem hægt er að bera á með annaðhvort spartlspaða eða kústpensli. Efnið er hraðþornandi og það er auðveldlega hægt að fullklára tvær umferðir umferðir á einum degi. KABRIC fæst í 30 fallegum litum, sem sækja innblástur í náttúruna og eru hannaðir undir áhrifum frá Skandinavískum minimalisma.
Gefðu veggjunum og húsgögnunum nýtt líf með fallegu KABRIC-litunum
KABRIC er, líkt og DETALE KC14, litað spartl sem hefur nú þegar sannað gildi sitt sem valkostur við veggjamálningu eða veggfóður. Með KABRIC nærðu fram afslappaðri stemningu og skapar einlæg og minimalísk áhrif í þínu rými.
KABRIC má nota jafnt á veggi sem á húsgögn. KABRIC hentar vel til að leika sér með liti - hvort sem þú vilt búa til andstæður milli veggja og/eða húsgagna, eða vinna með sömu/svipaða tóna
KABRIC er fáanlegt í 30 mismunandi tískulitum, sem allir hafa sína sérstöðu. Vantar þig að hressa upp á sjónvarpsvegginn með einhverju skemmtilegu efni? Kannski eitthvað til að hressa upp á borðstofustólana eða barborðið í bílskúrnum? Þá gæti KABRIC verið rétta efnið. Möguleikarnir eru endalausir.
Svona notar þú KABRIC
Eitt af því sem gerir KABRIC svo sérstakt er að hægt er að bera efnið á með bæði spartlspaða og pensli. Það gerir það að verkum að efnið getur vel nýst til að gefa gömlum húsgögnum nýtt líf, þar sem auðveldlega má pensla því á þau svæði þar sem erfitt er að koma spaða að.
Hér að neðan eru notkunarleiðbeiningar fyrir KABRIC - annars vegar með pensli og hinsvegar með spaða.
Ef þú notar spartlspaða:
- Afmarkið það svæði sem á að spartla með málningarlímbandi.
- Rúllið KABRIC með óreglulegum hætti á flötinn með spartlrúllu eða grófri málningarrúllu.
- Dragið úr og jafnið drefingu efnisins með spartlspaða.
- Endurtakið uns allur flöturinn hefur verið þakinn með jöfnu lagi af KABRIC.
- Leitist við að draga blautt yfir blautt og gætið þess að hafa alltaf nóg af efni á spöðunum.
- Gefið efninu 3-4 klukkustundir til að þorna á milli umferða.
- Áður en hafist er handa við seinni umferð er gott að léttslípa flötinn til að draga úr ójöfnum og spaðaförum.
- Berið seinni umferð á með sama hætti og þá fyrri
- Almennt er mælt með að reyna að forðast að skilja eftir spaðaför og ójöfnur.
- Fjarlægið málningarlímbandið áður en KABRIC þornar.
- Gefið efninu einn dag til að þorna og taka sig áður en flöturinn er tekinn í notkun eða berið á hann Topcoat.
Þetta þarftu að hafa við hendina þegar þú berð KABRIC á með spaða:
- Tvo spartlspaða í stærðinni 15-35 cm
- Spartlrúllu til að bera efnið upp á vegginn
- Málningarfötu eða málningarbakka
- Vörslupappír
- Málningarlímband
- Sandpappír í grófleika 180-220
Ef þú ert að nota pensil:
- Afmarkaðu flötinn sem á að spartla með málningarlímbandi.
- Notaðu spartlrúllu eða grófa málningarrúllu til að bera efnið á vegginn með óreglulegum hætti.
- Dragðu úr og jafnaðu efnið með penslinum.
- Endurtakið uns flöturinn hefur allur verið þakinn með jöfnu lagi af KABRIC.
- Leitist við að pensla blautt yfir blautt og hafið alltaf nóg af KABRIC í penslinum.
- Gefið efninu 3-4 tíma til að þorna milli umferða.
- Léttslípið milli umferða til að draga úr penslaförum og ójöfnum.
- Almennt er reynt að forðast að skilja eftir för eftir pensilinn og ójöfnur.
- Fjarlægið málningarlímbandið áður en KABRIC þornar.
- Gefið efninu einn dag til að þorna og taka sig áður en flöturinn er tekinn í notkun, eða berið á Topcoat.
Þetta þarftu að hafa við hendina þegar þú berð KABRIC á með pensli:
- Kústpensil - ca. 10 cm breiðan
- Spartlrúlla til að bera efnið upp á vegginn
- Málningarfata eða málningarbakki
- Vörslupappír
- Málningarlímband
- Sandpappír í grófleika 180-220