Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Segulmálning

Segulmálning inniheldur járnduft sem gefur henni segulvirkni. Þannig má nota málninguna til að búa til segulmagnaðan flöt til að hengja segla á.

Með málningnunni má búa til skipulagstöflu sem er ekki aðeins praktísk heldur má líka gera hana persónulega með því t.d. að hengja upp ljósmyndir af fjölskyldunni eða listaverkin frá börnunum.

1 vara
Sýni 1 vörur af 1

Hvar er hægt að mála með segulmálningu?

Það er í raun aðeins ímyndunaraflið sem setur þér skorður varðandi það hvar þú málar upp segultöflu. Það mikilvægasta er að passa að flöturinn sem þú málar sé sléttur til að tryggja það að seglarnir hangi vel á fletinum.

Segulmálningu má t.d. mála á:

  • Veggfóður
  • Gipsveggi
  • Steypta veggi
  • Timbur
  • Spartlaða fleti

Segulmálningin gefur þér ótalmarga möguleika til að búa til persónulega og praktíska, segulmagnaða skipulagstöflu á ýmsar gerðir undirlags.


Áður en þú málar með segulmálningu

Líkt og með alla málningarvinnu skiptir undirbúningur miklu máli. Þrif, slípun og grunnur er undirstaða þess að útkoman verði í samræmi við væntingar. Mikilvægt er að velja sléttan flöt til að tryggja að málningin nái góðri viðloðun og að seglarnir hangi vel á töflunni.


Svona málar þú með segulmálningu

Segulmálningin er eins konar grunnur sem er notaður áður en málað er með hefðbundinni yfirmálningu. Ef þú ert að mála á vegg þá skaltu mála með segulmálningunni þar sem þú vilt hafa upphengitöfluna, áður en þú málar svo með veggjamálningunni.

Til að fá sem best seguláhrif þá mælum við með að mála a.m.k. 3 umferðir af segulmálningunni. Það getur verið gott ráð að mála umferðirnar í sitthvora áttina til að járnduftið í málningunni dreifist örugglega jafnt og á allan flötinn.

Með því að rúlla í sitthvora áttina milli umferða tryggir þú að flöturinn mettast allur vel af járndufti og minnkar líkur á að það myndist blettir á fletinum þar sem seglar festast ekki jafn vel á.

Það ber að hafa í huga að málaður flötur mun aldrei hafa jafn sterk seguláhrif og járn og málmar. Þess vegna getur verið góð hugmynd að nota sterkari segla til að hengja upp á málaða töflu.


Er hægt að fjarlægja segulmálningu af vegg?

Það er vel hægt að fjarlægja segulmálningu af vegg, ef þú skyldir vilja breyta til eftir einhvern tíma. Yfirleitt skiptir þó ekki miklu máli þó að einhver seguláhrif séu enn eftir á fletinum. Ef þú vilt losna við seguláhrifin er best að gera það annaðhvort með því að slípa flötinn eða mála yfir hann aftur. Með því að mála aukaumferð af málningu yfir segulmálninguna, má draga úr þeim áhrifum sem koma í gegn.


Að nota segulmálningu og töflumálningu saman

Hægt er að nota bæði segulmálningu og töflumálningu saman til að fá skipulagstöflu með tvenns konar virkni. Þannig býrð þú þér til töflu sem þú getur bæði skrifað á og hengt upp segla. Hér er það aftur aðeins ímyndunaraflið sem setur þér skorður og með þessum hætti er vel hægt að útbúa skipulagstöflu sem getur verið mjög persónuleg og gefið heimilinu þínu skemmtilegan svip.