Grunnmálning

Grunnmálning - nauðsynleg eða ekki?
Jafnvel þó að flestar málningar sem framleiddar eru í dag hafi mjög góða þekju, þá hefur grunnmálning ýmsa eiginleika sem gera hana að fýsilegri viðbót við málningarvinnuna. Óháð því hvers eðlis þitt málningarverkefni er, þá mælum við með að þú notir grunnmálningu áður en málað er.
Hefðbundnar gerðir grunnmálningar til notkunar innahúss auka bindingu, væta undirlagið og metta, gefa fyllingu og þétta yfirborðið. Svo eru einnig til sérhæfðari tegundir af grunnmálningu, m.a. utanhússgrunnmálning, einangarunargrunnur og ryðtefjandi grunnmálningar.
Innanhúss grunnmálning
Innanhúss grunnmálning er notuð til að þétta eða loka yfirborðinu. Með því að nota einangrandi grunnmálningu má minnka líkur á að vatnsleysanleg litarefni úr undirlaginu blæði í gegnum grunninn og/eða málninguna. Innahúss grunnmálningu má einnig nota á spartlaða eða pússaða veggi til að metta þá og koma þannig í veg fyrir að undirlagið drekki í sig verulegt magn af lokamálningunni.
Ef þú þarft að grunna glerfilt, glervef eða trefjadúk þá er til sérstakur grunnur sem er hannaður til að loka yfirborðinu og koma í veg fyrir að dúkurinn drekki í sig verulegt magn af málningu. Hann gengur jafnt á filtdúka sem og gips og skilar jafnri og sléttri áferð sem gerir flötinn tilbúinn til málunar.
Margir eiginleikar grunnmálningar
- Þegar þú málar með grunnmálningu nærðu fram fallegri og einsleitri áferð
- Grunnmálning tryggir aukna hulu og viðloðun lokamálningar við flötinn
- Með grunnmálningu má hylja bletti, kvisti o.þ.h. í undirlaginu og draga úr líkum á því að þeir sjáist að lokinni yfirmálun
- Grunnmálning mettar yfirborðið sem þar af leiðandi drekkur minna í sig af yfirmálningunni. Það leiðir því til minni efnisnotkunar af málningu og tryggir það að málningin væti yfirborðið með jöfnum hætti og skili jafnri lokaáferð.