Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Gólfmálning

Auka má slitþol og líftíma gólfa með málningu sem hönnuð er til að þola það álag sem fylgir aðstæðum. Notaðu málningu sem hefur gott slitþol og myndar glansandi fallega filmu. Þú getur fegrað öll gólf heimilisins með gólfmálningu frá Flügger.

11 vörur
Viðloðunargrunnur – Interior Fix Primer Flügger
Frá 2.790 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
PU gólfmálning – Floor Paint PU Flügger
Frá 4.690 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Epoxygólfmálning 2K - slitsterk epoxymálning Flügger
Frá 6.590 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Flügger EP-V Yfirlak - Vatnsbundið epoxyglærlakk
Frá 6.590 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Undirbúningur – DETALE KABRIC Floor
Frá 22.990 kr.
Litapróf - Þekjandi
Frá 599 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Litapróf - Gegnsætt
Frá 599 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Er litanlegt
Sýni 11 vörur af 11

Hvaða málningu á að nota á gólf?

Hjá Flügger færðu hina vinsælu Akrýl Gólfmálningu. Hún myndar slitsterka, öndunarvirka filmu og hentar því sérlega vel á stein- og trégólf. Málningin hefur hálfgljáandi áferð sem endurkastar ljósi frá dagsbirtu á hrífandi og þægilegan hátt. Finndu þann lit sem þú óskar þér og upplifðu glæsilega breytingu á þínu gólfi.


Að mála gólf með epoxy

Tveggja þátta epoxy gólfmálning hentar vel þar sem gerð er krafa um mikið slitþol. Ef þig dreymir um slétt og glansandi gólf í bílskúrnum eða í stofunni þá er epoxy málning tilvalin. Hún er hönnuð til að þola mikið álag og hefur mjög hátt slitþol við hefðbundna, daglega notkun. Málning hefur gott efnaþol sem gerir hana að einni sterkustu gólfmálningu sem fáanleg er. Þegar verið er að meðhöndla epoxy er mikilvægt að gæta varúðar. Mælt er með að klæðast hlífðarfatnaði og hönskum. Jafnvel þó að epoxy sé allajafna ekki heilsuspillandi, er góð regla að gæta fyllstu varúðar þegar verið er að vinna með efnaþolin efni. Mælt er með að lofta út á meðan verið er að vinna með epoxy og í nokkra daga á eftir þar sem gufur frá efninu geta haft veruleg áhrif á loftgæði innanhúss. Einnig getur efnið verið ertandi ef það kemst í snertingu við húð. Útkoman er ótrúlega snyrtilegt og slitsterkt yfirborð sem endist árum saman.


Hvað ef gólfið er málað fyrir?

Ef til stendur að mála gólf sem hefur áður verið málað er mikilvægt að huga vel að undirbúningsvinnu. Byrjaðu á að þrífa gólfið vel með viðeigandi hreinsiefni. Þegar gólfið hefur þornað skaltu mattslípa það með fínkorna sandpappír. Það er hægt að handslípa, en fljótlegri leið er að nota slípivél. Við mælum svo með að grunna gólfið áður en það er málað til að tryggja hámarksviðloðun.


Svona málar þú gólf innanhúss:

Gott að hafa í huga:

  • Þrífið vel með Fluren 37 hreinsiefni
  • Spartlið í skemmdir í gólfi, t.d. með Akrýlspartli.
  • Mattslípið flötinn með 120 sandpappír
  • Grunnið til að tryggja hámarksviðloðun
  • Epoxy málningin er svokölluð tveggja þátta málning. Henni fylgir herðir sem hræra skal vandlega saman við málninguna áður en hún er notuð.

Gangi þér vel!