Gólflakk
Hvað er gólflakk?
Gólflakk er efni sem er borið á trégólf eða annað tréverk. Lakkið myndar filmu á yfirborði gólfsins sem eykur slitþol og hrindir frá sér óhreinindum. Gólflakkið verndar þannig gólfið þitt gegn sliti frá daglegri notkun. Gólflakk hentar því mjög vel til notkunar á gólf sem eru undir miklu og/eða stöðugu álagi.
Að velja gólflakk
Þumalputtareglan er að meðhöndla megi allar viðartegundir með gólflakki, hvort sem um er að ræða grunnaða fleti, áður lakkaða eða ómeðhöndlaða.
Það eru þó ákveðnar reglur og ráðstafanir sem getur þurft að hafa í huga þegar verið er að meðhöndla sérstakar viðartegundir. Ef gólfið þitt hefur verið hvítbæsað, sápuþvegið eða lútað, skal byrja á að slípa gólfið áður en það er lakkað til að tryggja að flöturinn sé hreinn og ásýnd hans jöfn.
Að velja lit og glans
Ef þú vilt hafa gólfið þitt í lit er góð lausn að mála það í lit áður en það er glærlakkað með gólflakki. Gólflakkið er fáanlegt í nokkrum gljástigum, allt frá möttu upp í háglans. Hér er ágætis viðmið að því hærra sem gljástigið er þeim mun meira mun flöturinn glansa að lokinni meðhöndlun.
Svona lakkar þú með gólflakki
Áður en þú hefst handa skaltu reyna að átta þig á hvort gólfið þitt hafi verið lakkað áður eða hvort það sé ómeðhöndlað. Það getur skipt máli varðandi undirbúningsvinnuna, hvers konar efni hefur verið borið á gólfið áður.
- Ryksugið gólfið og þvoið það svo með hreinsiefni til að fjarlægja allt ryk, fitu og önnur óhreinindi.
- Að því loknu er gott að skúra gólfið með hreinu vatni til að losna við sápuleifar.
- Leyfið gólfinu að þorna vel. Ágæt regla er að bíða með frekari meðhöndlun þar til daginn eftir hreinsun, ef hægt er að koma því við.
- Notið pensil til að lakka meðfram veggjum og í hornum og rúllið stóru fletina með góðri lakkrúllu. Gott er að nota rúllu á skafti, það auðveldar þér að ná löngum, jöfnum strokum.
- Berið lakkið á í lengdarstefnu viðarins og takið helst fleiri en eitt borð í einu til að forðast skörun. Val á verkfærum ræðst af því hvernig gólfflöturinn er. Ef gólfið er mjög óslétt getur verið betra að nota pensil, en ef um er að ræða jafnt og slétt gólf þá er gott að nota stóra, snögghærða málningarrúllu. Reikna má með að gólfið þurfi a.m.k. 12 klukkutíma til að þorna að lokinni lökkun.
- Þegar lakkfilman hefur náð að harðna er gott að slípa létt yfir með sandpappír og ryksuga slípirykið áður en næsta umferð er borin á. Endurtakið ferlið á milli umferða, ef þið teljið þörf á fleiri umferðum.
Þetta þarftu til að lakka gólf
- Hreinsiefni
- Pensil
- Lakkrúllu
- Framlengingarskaft
- Sandpappír