Flísamálning
Með því að mála flísar má komast hjá því að leggja í mikinn tilkostnað og umstang sem fylgir því að skipta gömlum flísum út fyrir nýjar. Flísamálun er auðveldari og ódýrari leið til að fríska upp á flísarnar. Þú getur gefið rýminu alveg nýtt yfirbragð og glæsilegt útlit sem sniðið er að þínum óskum.
Að velja flísamálningu
Þegar mála skal flísar er mikilvægt að nota til þess þar til gerð efni. Flísamálning býr yfir þeim eiginleikum að hún bindur sig vel við slétta og harða fleti. Þannig tryggir þú mun betri viðloðun og fallegri útkomu með því að nota flísamálningu frekar en hefðbundna málningu.
Til eru margar mismunandi tegundir af málningu sem hentar á flísar - Valið fer í raun eftir því í hvers konar rými flísarnar eru og hvers konar álagi þær eru undir. Til að lágmarka hættu á flögnun er mikilvægt er að hafa í huga að velja rétta efnið miðað við aðstæður hverju sinni.
Að velja lit og gljástig á flísar
Ef um er að ræða lítið rými, eins og t.d. lítið baðherbergi getur verið ágætt að velja ljósan litatón. Það getur látið rýmið virka opnara og stærra heldur en ef þú notar dökkan tón. Aftur á móti geta dökkir tónar líka skapað rýminu ákveðna sérstöðu. Þú getur alltaf prófað þig áfram með litaprufum þar til þú finnur hinn fullkomna lit á flísarnar. Þú getur líka byrjað á því að sækja þér innblástur í litakortunum okkar í næstu verslun eða á flugger.is.
Þegar mála skal flísar er ágætt að velja málningu með hærra gljástigi en á hefðbundna veggi. Þannig færðu fallega glansandi áferð á flísarnar.
Svona málar þú flísar
Þegar verið er að mála glansandi, slétta og harða fleti eins og flísar skiptir undirbúningsvinnan öllu máli. Með því að huga vel að undirvinnu má ná fram fallegri og einsleitri áferð.
- Þrífið flísarnar vandlega með viðeigandi málningarhreinsiefni til að losna við kalk, fitu og önnur óhreinindi. Það getur þurft að þrífa oftar en einu sinni ef um er að ræða mikil óhreinindi. Að því loknu skal skola flötinn vel með hreinu vatni og þurrka svo með hreinum klút.
- Fjarlægið gamla, flagnandi málningu og léttslípið yfir með sandpappír.
- Gerið við skemmdir í fúgu eða aðrar ójöfnur með þar til gerðu spartli. Slípið svo aftur yfir til að fá jafnt yfirborð. Þrífið að því loknu aftur, áður en málað er, til að tryggja að flöturinn sé hreinn og laus við allt slípiryk.
- Grunnið flísarnar með viðeigandi bindigrunni til að tryggja að málningin fái hámarksviðloðun.
- Berið físamálninguna á í löngum strokum með málningarrúllu. Hugið sérstaklega að jafnri efnisdreifingu í fúgunum. Gefið málningunni góðan tíma til að þorna áður en borin er á önnur umferð.
Þetta þarft þú til að mála flísar
- Málningarhreinsiefni
- Góðan klút eða tusku, t.d trefjaklút
- Sandpappír
- Spartl
- Bindigrunn
- Flísamálningu