Penslahreinsir
Ef þú vilt geta notað penslana í fleiri en eitt málningarverkefni þá þarftu að huga vel að góðum þrifum sem fyrst að notkun lokinni. Góð hreinsun tryggir ekki bara betri endingu, heldur viðheldur einnig gæðum penslanna. Góð penslasápa er því mjög mikilvægur partur af málningarvinnunni, hvort sem um ræðir eftir málun, lökkun eða viðarvörn. Penslasápan auðveldar og flýtir fyrir hreinsun verkfæranna, og kemur því að góðum notum við lok málningarvinnu.
Hvað er penslasápa?
Penslasápa er hreinsiefni fyrir málningarverkfæri. Hún vinnur vel á vatnsmálningu og annarri hefðbundinni málningu. Penslásápa fjarlægir einnig almenn óhreinindi úr verkfærunum. Eins má nota penslasápu til að þrífa fitu, olíu og tjöru af járni og steinflötum.
Penslasápa er umhverfivænni leið til að þrífa verkfæri heldur en ef notuð er t.d. terpentína.
Þetta má nota penslasápu í
Penslasápu má nota til að þrífa ýmis konar málningarverkfæri eftir notkun. Hún virkar ekki bara á pensla, heldur má einnig nota hana til að þrífa rúllur og önnur verkfæri sem hafa óhreinkast við vinnuna.
Svona notar þú penslasápu
- Þegar þú hreinsar verkfæri eftir málun, lökkun eða viðarvörn borgar sig að vanda til verka. Ávinningurinn er lengri líftími verkfæranna. Penslasápa hjálpar þér að halda penslunum hreinum og góðum milli verka, í lengri tíma.
- Byrjaðu á að skola pensilinn eða rúlluna í köldu vatni þar til liturinn af málningunni er ekki lengur sýnilegur í vatninu.
- Vinnið penslasápuna vandlega inn í pensilinn eða rúlluna.
- Skolið svo sápuna vel úr með hreinu vatni.
- Strjúkið hárunum á penslinum saman þannig hann verði ekki úfinn eftir að hann þornar. Látið svo pensilinn þorna liggjandi. Gætið þess að hann standi ekki á hárunum eða skaftinu.