Nikótínhreinsir
Hvað er nikótínhreinsir?
Nikótínhreinsir er hreinsiefni sem vinnur á tjöru- sót- og nikótínmenguðum flötum. Nikótínhreinsir þrífur og sótthreinsar lífræn efni og örverur sem valda vondri lykt, t.d. reykingalykt. Efnið vinnur um leið vel á almennum óhreinindum.
Í hvað má nota nikótínhreinsi?
Nikótínhreinsir hefur eiginleika sem henta mjög vel til að hreingera á svæðum sem hafa orðið fyrir brunatjóni, áhrifum sóts eða þar sem hefur verið reykt. Efnið vinnur á lykt og fjarlægir ummerki eftir sót, nikótín, fitu, olíur og tússliti.
Svona notar þú nikótínhreinsi
Nikótínhreinsi skal blanda í hlutföllunum 1:9 með vatni fyrir notkun. Notaðu tusku, svamp eða mjúkan bursta til að bera blönduna á. Skrúbbið vel, allt þar til tuskan, svampurinn eða burstinn hættir að draga óhreinindi úr fletinum. Látið blönduna vinna á fletinum í 5 mínútur og þrífið svo með hreinu vatni. Endurtakið meðferðina ef þörf krefur.
Eftir þrif með nikótínhreinsi
Að loknum þrifum með nikótínhreinsi er gott að þrífa með hefðbundnu málningarhreinsiefni og grunna með einangrandi grunni (Stop Primer) áður en þú málar. Einangrunargrunnurinn lágmarkar hættuna á því að blettir og lykt smiti í gegnum málninguna að verki loknu.