Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Málnlingaleysir

Málningaruppleysir hentar sérlega vel til að leysa upp margar gerðir málningar og lakka á ýmsum flötum. Það eru margar leiðir til að fjarlægja gamla málningu en uppleysir er áhrifarík og einföld leið. Efnið mýkir málninguna sem síðan er hægt að skafa af.
1 vara
Lakk- og málningahreinsir
Frá 5.490 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Sýni 1 vörur af 1

Hvað er málningaruppleysir?

Málningaruppleysir er efni sem hentar vel ti lað hreinsa málningu og lakk af flestum flötum. Efnið mýkir málningarfilmuna sem gerir það að verkum að einfalt er að skafa hana af.

Í hvað má nota málningaruppleysi?

Málningaruppleysir hentar til dæmis vel þegar á að fríska upp á gömul húsgögn með málun. Þá getur verið gott að fjarlæga eldri málningarfilmu af áður en málað er. Eins getur efnið hentað vel á gólf innandyra, áður en það er endurmálað.

Málningaruppleysi má nota á margskonar fleti innandyra, t.d. tré, járn og málma, gler, stein og múrfleti sem áður hafa verið málaðir með olíu-, alkýð- eða plastmálningu. Efnið er einfalt í notkun og áhrifaríkt og getur því komið að góðum notum við ýmsar aðstæður.

Svona notar þú málningarhreinsi

Þegar þú ætlar að endurmála skiptir undirbúningsvinna mjög miklu máli. Þá getur málningaruppleysir komið að góðum notum til að fjarlægja gamla málningarfilmu eða lakkfilmu.

  • Byrjaðu á að pensla flötinn með málningaruppleysi
  • Láttu efnið liggja á og vinna þangað til það hefur náð að mýkja filmuna og skafðu hana þá af.
  • Ef um er að ræða mörg lög af gamalli málningu eða mjög þykkt lag þá getur þurft að endurtaka ferlið.
  • Hreinsið flötinn vel með tréhreinsi til að fjarlægja leifar af uppleysi og gamalli málningu áður en málað er aftur.