Hreinsiefni fyrir málm
Hvað er hreinsiefni fyrir járn og málma?
Hreinsiefni fyrir járn og málma er hraðvirkt hreinsiefni sem leysir upp fitu og önnur óhreinindi, t.d. sílikon, olíu, tjöru og vax. Hreinsiefnið er mjög áhrifaríkt og virkar vel í undirbúningsvinnu fyrir málun á járni og málmum.
Í hvað á að nota hreinsiefnið?
Hentar til notkunar á fleti úr járni og málmum áður en þeir eru málaðir. Hreinsiefnið vinnur vel á almennum óhreinindum, fitu, ryði, kalki sápuleyfum og hvítaryði (metaloxíð). Efnið skilar hreinum fleti með einsleitu og jöfnu yfirborði sem er tilbúið til frekari meðhöndlunar.
Hreinsiefni fyrir járn og málma vinnur á:
- Olíu
- Tjöru
- Vaxi
- Kalki
- Sápuleyfum
- Hvítaryði (Metaloxíð)
Svona notar þú hreinsiefnið
Efnið er hraðvirkt, gufar fljótt upp og virkar vel. Eins og með alla málun þá skiptir undirbúningsvinna hér miklu máli. Reyndu að fjarlægja öll laus óhreinindi og ryð með vírbursta, sköfu eða spaða áður en þú þværð með hreinsiefninu.
Berðu hreinsiefnið á með klúti, svamp eða mjúkum bursta. Láttu efnið vinna í 5 mínútur og skolaðu svo vel með hreinu vatni. Látið flötinn þorna alveg áður en hafist er handa við að grunna og mála.