Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Flügger veitir ánægjuábyrgð á þekju og lit

Lestu meira um ánægjuábyrgðina okkar hér.

Litaábyrgðin

Með nýrri litábyrgð er enn auðveldara að velja rétt.

Það er ekki alltaf einfalt að finna hinn fullkomna lit. Hann getur litið vel út í verslun – en passar hann líka heima hjá þér? Við mælum því alltaf með að taka litaprufur með heim og prófa á staðnum.

Ef þú ert samt ekki ánægð/ánægður með litinn, þá er engin ástæða til að hafa áhyggjur. Komdu einfaldlega aftur í verslunina innan 3 mánaða frá kaupum – og við skiptum málningunni fyrir nýjan lit, án aukakostnaðar.

 

Skilmálar

  • Gildir fyrir alla liti í litakerfinu okkar.
  • Hægt að nýta innan 3 mánaða frá kaupdegi gegn framvísun gildrar kvittunar og mynd af máluðu yfirborði.
  • Gildir fyrir alla litaða Flügger-innimálningu fyrir vegg, loft, tré og gólf
  • Ábyrgðin gildir einnig fyrir útimálningu okkar: Wood Tex 04050607WindowFacade Resist, Impredur, Universal, og Silikat
  • Gildir eingöngu fyrir einstaklinga
  • Gildir fyrir allar Flügger-vörur sem keyptar eru í Flügger-verslunum og í vefverslun.
  • Ábyrgðin felur í sér að þú sem viðskiptavinur getur skipt allt að einni 10 lítra fötu fyrir hvern lit.
  • Við mælum alltaf með því að þú takir litaprufur með þér heim og sjáir litinn í þínu eigin umhverfi áður en þú kaupir meira magn.

Þekjuábyrgð

Hefur þú málað inni eða úti með þekjandi málningu frá okkur – en hún þekur ekki nægilega eftir tvær umferðir? Þá getur þú nýtt þér ánægjuábyrgðina og fengið meira af sömu vöru – þér að kostnaðarlausu.

 

Skilmálar

  • Gildir innan 3 mánaða frá kaupdegi. Taktu mynd af niðurstöðunni og sýndu hana ásamt kvittun þar sem varan var keypt.
  • Veitir rétt á meira af sömu vöru þar til undirlagið er þakið. Við aðstoðum við að meta magn út frá mynd.
  • Gildir fyrir vörur keyptar í verslunum eða á flugger.is.
  • Gildir eingöngu fyrir einstaklinga.
  • Gildir fyrir Wood Tex 04050607WindowFacade Resist, Impredur, Universal, og Silikat, sem eru vörur sem eiga að þekja undirlagið fullkomlega með tveimur umferðum. Auk þess gildir ábyrgðin einnig fyrir alla innimálningu fyrir vegg, loft, tré og gólf.

Við bjóðum ekki upp á aðrar bætur eða endurgreiðslur vegna ófullnægjandi þekju en þær sem koma fram hér að ofan.