Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Borið á pallinn - skref fyrir skref

Lærðu að bera pallaolíu á réttan hátt og fá jafna áferð sem ver pallinn gegn veðri og vindum – skref fyrir skref leiðbeiningar fyrir besta árangur.

Hér eru einfaldar leiðbeiningar um það hvernig skal olíubera pallinn.

  1. Forðist að bera pallaolíuna á í beinu sólarljósi, þá getur hún þornað of hratt og ekki fengið nægjanlegan tíma til að smeyga sér ofan í viðinn til að mynda verndunarfilmuna sem þú sækist eftir.
  2. Meðhöndla skal verkefnið að bera olíuna á á kerfisbundinn hátt.
  3. Berðu olíuna á á lengd viðsins, ekki breidd hans, heldur í þá átt sem hver og ein spýtan liggur - settu olíuna á samfellt á hverja spýtu, eða blautt í blautt, en það tryggir jafna áferð.
  4. Passaðu að bera á hvern planka í einu, í sinni heildar lengd, alla leiðina yfir pallinn. Ekki skipta pallinum upp í "kubbalöguð" svæði, þá áttu á hættu á að pallurinn verði mislitur. Hér þarf að muna að bera á lengdina eina í einu en ekki breiddina.
  5. Vinnið olíuna ofan í viðinn þar til viðurinn er mettaður og birtist samræmdur án þess að mynda lakklög.
  6. Ef það eru svæði með umfram olíu skaltu þurrka hana af með kusklausri tusku. Ef mismikið af olíu eru á pallinum, og hún fær að þorna þannig, áttu á hættu að lenda í mislitun.