Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Flügger styrkir félagið þitt

Þann 26.apríl 2022 afhentum við styrktarávísanir til mismunandi félaga sem eru meðlimir í Flügger Andelen. Við erum afar stolt af því að geta styrkt góð málefni og hversu ánægð mismunandi félög eru að hafa tök á að safna styrkjum. Fjöldi meðlima í Andelen fer sífellt vaxandi.

Félögin eru meðlimir í Flügger Andelen verkefninu sem snýst um það að stuðningsaðilar þessara félaga fá afslátt hjá okkur þegar þeir þurfa að framkvæma heima hjá sér og við endurgreiðum þeirra félögum 5% af öllum þeirra kaupum yfir eitt almanaksár.

Þetta var afar skemmtilegur dagur þegar við afhentum ávísanirnar og mikil ánægja með verkefnið sem er nýtt af nálinni hjá okkur og var innleitt árið 2021.

Öll félög og hagsmunasamtök sem eru ekki rekin í hagnaðarskyni geta gerst meðlimir í Flügger Andelen.

Er félagið þitt í Flügger Andelen? Ef þú ert með einhverjar spurningar, kíktu í næstu Flügger verslun eða sendu okkur póst

Hér eru nokkrar myndir frá deginum

Félag Eldri Borgara í Hafnarfirði. Elín frá Flügger, Valgerður formaður F.E.B.H. & Þorsteinn gjaldkeri F.E.B.H.

Elín frá Flügger og Gréta framkvæmdastjóri Styrktarfélags Krabbameinssjúkra barna.

Elín frá Flügger og Garðar Sölu- og markaðsstjóri knattspyrnudeildar FH.

Magnús framkvæmdastjóri Hauka og Elín frá Flügger.