Flügger Wood Tex viðarvörn
ENDING + VIRKNI + UMHVERFI
Wood Tex er vörulínan okkar af hágæða viðarvörnum fyrir íslenskar aðstæður.
Vörurnar eru þróaðar í Danmörku af sérfræðingum Flügger og vandlega prófaðar bæði innanhúss og af óháðum aðilum með áherslu á virkni, endingu og umhverfi.
Lengir líftímann. Viðheldur fallegu útliti.
Svansmerktar vörur
Vörurnar í Wood Tex línunni bera Svansmerkið sem er þín trygging fyrir gæðum og minni umhverfisáhrifum.
Þrjár tegundir
Viðarvörn fæst í þremur útfærslum: þekjandi, hálf þekjandi og tréolía.
Þekjandi viðarvörn
Þekjandi áferð þar sem viðaræðarnar sjást ekki í gegn
Fyllingarmikil viðarvörn með áferð og útliti sem minnir á málningu
Hentar best á lóðrétta fleti
Hálf þekjandi viðarvörn
Dregur fram náttúrulega áferð viðarins sem sést áfram í gegn
Þykkari og fyllingarmeiri en viðarolía
Myndar verndandi filmu á yfirborði viðarins
Hentar best á lóðrétta fleti
Vörur í hálf þekjandi viðarvörn
Tréolía
Dregur fram náttúrulegan lit og hlýju viðarins
Þunnfljótandi olía sem smýgur djúpt inn í viðinn
Hentar sérstaklega vel fyrir timburpalla og garðhúsgögn
Vörur í tréolíu flokknum
Framkvæmd
Hvernig best er að bera viðarvörnina á fer eftir ástandi viðarins — hvort hann sé ómeðhöndlaður, áður meðhöndlaður eða með þörungamyndun. Hér getur þú skoða fleiri vörur fyrir viðarvörn sem gætu hentað verkefninu þínu.
Réttu penslarnir fyrir viðarvörn og útimálningu
Nýju penslarnir okkar eru hannaðir með áherslu á vinnuvistfræði, skilvirkni og sjálfbærni.
Gúmmíhúð á öllu gripsvæðinu tryggir betri stjórn á penslinum á meðan sveigjanlegir non drip þræðir draga úr slettum og tryggja jafna og góða áferð.
Við leggjum áherslu á sjálfbærari framleiðslu og því eru plasthlutar skaftsins framleiddir úr 100% endurunnu plasti.























