Hér koma einfaldar og ítarlegar leiðbeiningar um það hvernig á að hreinsa viðarpallinn og gera hann skínandi hreinan áður en þú berð pallaolíu á hann.
Þrífðu pallinn á skýjuðum degi svo hreinsiefnið þorni ekki of hratt ofan í pallinn
Byrjaðu á því að bleyta yfirborðið áður en hreinsiefnið er borið á svo að hreinsiefnið þorni ekki ofan í viðinn
Hreinsaðu yfirborðið á 5-10 m2 svæðum
Berðu Flügger Terrace Cleaner á alveg óþynnt (óblandað) úr brúsanum og láttu það virka í u.þ.b. 10 mínútur. Þú getur borið hreinsiefnið á með pensli eða rúllu, þægilegast er að smella rúllunni eða penslinum á skaft til að auðvelda þér verkið.
Þegar 10 mínúturnar eru liðnar þá er best að bleyta aftur með vatni og skrúbba yfirborðið með stífum bursta
Skolið yfirborðið hreint með garðslöngu, notið ríkulegt magn af hreinu vatni. Fara þarf mjög varlega ef háþrýstidæla er notuð, en hún gæti rifið upp viðinn.
Ef alvarleg óhreinindi eru til staðar fram má endurtaka aðferðina
Notaðu Flügger Facade Clean við reglubundna hreinsun – fylgdu leiðbeiningunum/blönduninni hlutfall á merkimiða/gagnablaði = 1:15. Reglubundin þrif á pallinum eru nauðsynleg en á pallinn setjast óhreinindi alveg eins og á bílinn þinn.




