Fara að aðalefni
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Flügger logo in black.
Medhondlun timburs

Meðhöndlun timburs – gagnvarið og ómeðhöndlað

Þarf að meðhöndla yfirborð á gagnvörðu timbri?

Ekki þarf að meðhöndla yfirborð á gegndreyptum viði jafn oft og á öðrum viði. Það getur samt sem áður verið gott að nota viðarvörn þar sem hún eykur enn vatns- og rakaþol viðarins.

Það er mjög mikilvægt að byrja ekki að bera viðarvörnina á fyrr en viðurinn er alveg þurr. Þiljur er yfirleitt hægt að viðarverja þremur til fjórum vikum eftir gegndreypingu.

Trykimprægnerede terrassebrædder.

Hvernig á að fara með ómeðhöndlaðan við:

Íslensk veðrátta getur verið óvægin. Þess vegna er mikilvægt að viðarverja tréverk á fullnægjandi hátt svo það þoli veður og vind. Hér má finna leiðbeiningar um grundvallarvörn fyrir ómeðhöndlaðan við utandyra.

Nýr og hreinn viður lítur ótrúlega vel út - en þarfnast reglubundinnar umhirðu til að hann haldi sér.

Sumar viðartegundir eru svo sterkar að þær þola veðrun árum saman án þess að þær láti mikið á sjá, en flest tréverk utandyra þurfa svolitla aðstoð til að þola veður, vind, sól og rigningu.

Ef ekki er hugsað vel um tréverkið dofnar liturinn og viðurinn lætur á sjá. Einnig er hætta á að viðurinn fúni og þá þarf að skipta um hann.

Því skaltu ávallt ganga úr skugga um að bera að minnsta kosti eina umferð af viðarvörn á nýtt og ómeðhöndlað tréverk til að verja það gegn raka, þurrki, sveppagróðri og meindýrum. Þetta er verkefni sem þú þarft enga aðstoð við, svo framarlega sem þú vandar til verka.

Copyright © 2026, Flügger group A/S, Islevdalvej 151, 2610 Rødovre, CVR-nr.: 32788718. All Rights Reserved.