Fara að aðalefni
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Flügger logo in black.

Flügger og Svansmerkið

Svansmerkið er sameiginlegt norrænt umhverfismerki og eitt af opinberum umhverfismerkjum á Norðurlöndum. Merkið nýtur stuðnings opinberra stjórnvalda og gerir neytendum auðveldara að velja vörur sem uppfylla strangar umhverfis- og gæðakröfur.

Á Íslandi sér Umhverfisstofnun um Svansvottun í samstarfi við skrifstofur Svansins á hinum Norðurlöndunum.

Til að vara eða þjónusta geti hlotið Svansvottun þarf viðkomandi vöruflokkur að uppfylla kröfur Svansins. Svansmerkið er umhverfismerki af gerð I samkvæmt ISO 14024 og er einn af stofnmeðlimum Global Ecolabelling Network.

Hvað þýðir Svansmerkið?

Svansmerkið gerir strangar kröfur til bæði umhverfis-, gæða- og heilsutengdra þátta.

Kröfurnar taka meðal annars til:

  • lífsferils vörunnar

  • efnainnihalds og notkunar skaðlegra efna

  • flokkunar og meðhöndlunar úrgangs

  • orku- og vatnsnotkunar

  • gæða og endingar

  • takmarkana á hormónaraskandi, ofnæmis- og krabbameinsvaldandi efnum

Kröfurnar eru endurskoðaðar reglulega til að tryggja að Svansvottaðar vörur uppfylli ávallt gildandi kröfur.

Copyright © 2026, Flügger group A/S, Islevdalvej 151, 2610 Rødovre, CVR-nr.: 32788718. All Rights Reserved.